Erlent

Óð úr einu í annað á furðulegum „blaðamannafundi“

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump fór mikinn á því sem átti að vera blaðamannafundur en varð í reynd að kosningafundi þar sem hann fann Joe Biden flest til foráttu. Framboð forsetans aflýsti kosningafundi í New Hampshire um helgina. Formlega ástæðan var veður en eftirspurn eftir miðum var minni en oftast áður vegna kórónuveirufaraldursins sem enn geisar í Bandaríkjunum.
Trump fór mikinn á því sem átti að vera blaðamannafundur en varð í reynd að kosningafundi þar sem hann fann Joe Biden flest til foráttu. Framboð forsetans aflýsti kosningafundi í New Hampshire um helgina. Formlega ástæðan var veður en eftirspurn eftir miðum var minni en oftast áður vegna kórónuveirufaraldursins sem enn geisar í Bandaríkjunum. AP/Evan Vucci

Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði Joe Biden, væntanlegan mótframbjóðanda sinn, um að ætla að binda enda á glugga og úthverfi á furðulegum fundi með fréttamönnum í Hvíta húsinu í gær. Í viðtali hafnaði hann forsendum spurningar um hvers vegna svartir Bandaríkjamenn falla fyrir hendi lögreglumanna.

Hvíta húsið boðaði til þess sem átti að nafninu til að vera blaðamannafundur um ákvörðun Bandaríkjastjórnar að beita Kína refsiaðgerðum vegna nýrra og umdeildra þjóðaröryggislaga í Hong Kong. Af þeim 63 mínútum sem Trump talaði svaraði hann aftur á móti aðeins spurningum í sex mínútur. Umfjöllunarefni hans var sjaldnast málefni Kína og Hong Kong og breyttist eðli hans fljótt í kosningafund þar sem Trump beindi spjótum sínum að pólitískum keppinauti sínum.

Fréttaritari New York Times í Hvíta húsinu segir að jafnvel á mælikvarða Trump sem er ekki þekktur fyrir að halda sig við handrit í ræðum hafi fundurinn í gær verið sérstaklega laus í reipunum. Forsetinn hafi vaðið úr einu yfir í annað. Jafnvel þeir sem eru kunnugir hugðarefnum Trump og frásagnarhætti hans hafi á köflum átt erfitt með að skilja við hvað forsetinn átti.

Þannig virtist Trump halda því fram að gluggar heyrðu sögunni til ef Biden, fyrrverandi varaforseti sem verður að öllum líkindum forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, nær kjöri í kosningunum í nóvember. Biden myndi þar að auki leggja af úthverfi almennt og leggja efnahag Bandaríkjanna í rúst. Harmaði forsetinn að Biden hefði fært sig „svo langt til hægri“ en átti við til vinstri í stjórnmálum.

Biden kynnti fyrr um daginn áætlun sína í loftslagsmálum sem var tilefni ummæla Trump.

„Hún þýðir í raun og veru engir gluggar,“ fullyrti Trump um áætlun demókratans.

Efaðist um vitsmuni Biden

Í óhnitmiðaðri einræðu tæpti Trump á Kína, kórónuveirufaraldrinum, Parísarsamkomulaginu, hrörnandi hraðbrautum, útgjöldum til hersins, efnahagslífinu, skatta á orku, viðskipti við Evrópu, ólöglegum komum innflytjenda, vináttu sinni við forseta Mexíkó, glæpum í Chicago, dauðarefsingum, menntamálum og styttum af sögulegum persónum. Oft flakkaði hann á milli umræðuefna, sérstaklega Kína og kórónuveirunnar.

Fréttamenn máttu oft og tíðum hafa sig alla við að fylgja eftir við hvað forsetinn átti, til dæmis þegar hann ræddi um samstarfssamninga við lönd Mið-Ameríku um að koma í veg fyrir að fólk þaðan fari ólöglega inn í Bandaríkin.

„Við erum með frábæra samninga þar sem Biden og [Barack] Obama [fyrrverandi forseti] komu einu sinni með morðingjana út, þeir sögðu þá ekki koma með þá aftur inn í landið okkar, við viljum þá ekki. Jæja, við verðum, við viljum þá ekki. Þeir vildu ekki taka við þeim. Nú með okkur taka þeir við þeim. Einhvern daginn skal ég segja ykkur hvers vegna. Einhvern daginn segi ég ykkur hvers vegna. En þeir taka við þeim og þeir taka við þeim með mikilli ánægju. Þeir fóru einu sinni með þá út og þeir leyfðu ekki einu sinni flugvélunum að lenda ef þeir komu með þá til baka með flugvélum. Þeir hleyptu rútunum ekki inn í landið þeirra. Þeir sögðu við viljum þá ekki. Þeir sögðu nei en þeir komu ólöglega inn í landið okkar og þeir eru morðingjar, þeir eru morðingjar í sumum tilfellum,“ sagði Trump.

Þrátt fyrir þetta efaðist Trump um að Biden væri með öllum mjalla. Undanfarnar vikur hefur forsetinn ítrekað ýjað að því að Biden þjáist af vitglöpum. Þegar Trump stærði sig af því að hafa komið læknum sínum í opna skjöldu með því að standast próf um vitsmunalega getu með glæsibrag á dögunum sakaði hann Biden um að geta ekki staðist slíkt próf. Hvíta húsið hefur ekki viljað birta prófið og niðurstöður Trump.

Joe Biden (t.v.) mælist nú með allt að tíu prósentustiga forskot á Trump forseta í skoðanakönnunum á landsvísu. Viðbrögð Trump við kórónuveirufaraldrinum annars vegar og mótmælum gegn kerfislægri kynþáttahyggju og lögregluofbeldi hins vegar eru talin ástæða þess að Trump hefur dregist verulega aftur úr.Vísir/AP

Hafnaði að svartir séu frekar drepnir en hvítir

Enn tók forsetinn harðari afstöðu en margir félagar hans í Repúblikanaflokknum þegar hann var spurður út í mál sem tengjast miklum mótmælum sem blossuðu upp í vor gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju í viðtali sem hann veitti CBS-sjónvarpsstöðinni í gær.

Hafnaði Trump þeirri staðreynd að svartir Bandaríkjamenn verði frekar fyrir lögregluofbeldi en hvítir þegar fréttamaður spurði hann hvers vegna svartir deyja enn fyrir hendi lögreglumanna.

„Það gerir hvítt fólk líka. Það gerir hvítt fólk líka. En hræðileg spurning til að spyrja. Það gerir hvítt fólk líka. Fleira hvítt fólk, annars, fleira hvítt fólk,“ svaraði Trump.

Rétt er að í heildina falla fleiri hvítir Bandaríkjamenn fyrir hendi lögreglumanna en svartir. Þegar tekið er tillit til mannfjölda er fólk af öðrum kynþáttum aftur á móti hlutfallslega líklegra til að sæta lögregluofbeldi. Þannig eru svartir Bandaríkjamenn 2,8 sinnum líklegri til að vera drepnir af lögreglumönnum en hvítir.

Í sama viðtali kom Trump enn fána Suðurríkjasambandsins sáluga til varnar. Fáninn hefur lengi verið bitbein á milli þeirra sem telja hann sársaukafullan minnisvarða um þrælahald og borgarastríðið, mesta sundrungartímabil bandarískrar sögu, annars vegar og þeirra sem telja hann aðeins merki um stolt suðurríkjafólks hins vegar. Mississippi varð á dögunum síðasta ríki Bandaríkjanna til að fjarlægja táknið úr ríkisfána sínum. Þá hefur bandaríski herinn og kappakstursmótaröðin NASCAR bannað fánann á undanförnum vikum.

„Fyrir mér er þetta tjáningarfrelsi. Mjög einfalt. Hvort sem þér líkar hann, líkar hann ekki, þetta er tjáningarfrelsi,“ sagði Trump.

Viðbrögð Trump við mótmælum í kjölfar dauða George Floyd í haldi lögreglu í Minneapolis í maí er talin hluta ástæðu þess að vinsældum forsetans fer dvínandi og hann mælist nú töluvert langt á eftir Biden í skoðanakönnunum. Þær benda jafnframt til þess að samskipti kynþáttanna sé sá málaflokkur sem kjósendur treysta Trump verst til að fara með.


Tengdar fréttir

Tóku fánann með suðurríkjakrossi niður í hinsta sinn

Þjóðvarðliðar í Mississippi brutu fyrrum fána ríkisins saman í síðasta skipti við athöfn við ríkisþinghúsið í Jackson í gær. Fáninn var sá síðasti í Bandaríkjunum sem var enn með merki gamla Suðurríkjasambandsins.

Biden með afgerandi forskot í skoðanakönnunum

Skoðanakannanir benda til þess að Joe Biden, líklegur forsetaframbjóðandi demókrata, hefði afgerandi sigur á Donald Trump Bandaríkjaforseta í kosningum sem fara fram í nóvember.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×