Watford og West Ham unnu mikilvæga sigra í ensku úrvalsdeildinni í dag, sem fleyta báðum liðum langt með að tryggja sér öruggt sæti í deildinni á næstu leiktíð.
Watford tók á móti Newcastle á Vicarege Road. Gestirnir komust yfir á 23. mínútu með marki frá Dwight Gayle og staðan 0-1 í hálfleik.
Troy Deeney var hetja heimamanna í síðari hálfleik, en hann skoraði bæði mörk liðsins úr vítaspyrnu, það síðara á 82. mínútu sem reyndist sigurmarkið. Lokatölur 2-1 Watford í vil.
Watford er með sigrinum komið í 34 stig, sex stigum fyrir ofan Bournemouth sem situr í fallsæti. Afar ólíklegt er að Bournemouth takist að vinna upp þann mun í fjórum leikjum.
West Ham vann þá stórsigur á útivelli gegn Norwich en með sigri West Ham er Norwich fallið úr ensku úrvalsdeildinni.
Michael Antonio skoraði öll fjögur mörk West Ham í leiknum í 4-0 sigri. West Ham er með 34 stig líkt og Watford, en er sæti ofar en Watford á markatölu. Þeir eru líkt og Watford sex stigum fyrir ofan Bournemouth og því þarf mikið að gerast til að liðið falli um deild. Norwich er með 21 stig í neðsta sæti og formlega fallið úr deildinni.