Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton gerðu 1-1 jafntefli við Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Draumur Everton um Evrópusæti er hægt og rólega að fjara út.
Á 28. mínútu fengu Southampton víti en James Ward-Prowse klikkaði á punktinum. Það kom ekki að sök því á 31. mínútu kom markahrókurinn Danny Ings Southampton yfir.
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 42. mínútu og aðeins mínútu síðar jafnaði Brasilíumaðurinn Richarlison fyrir Everton.
Fleiri mörk voru ekki skoruð en Southampton voru töluvert meira með boltann, eða 61%.
Everton er í 11. sæti með 45 stig en Southampton í 12. sæti með 44 stig og bæði lið sigla því lygnan sjó í deildinni þegar fjórar umferðir eru eftir.