Leeds endurheimti toppsætið með öruggum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jack Harrison leyfði sér að fagna með „áhorfendum“ í dag.
Jack Harrison leyfði sér að fagna með „áhorfendum“ í dag. vísir/Getty

Það var sannkallaður stórslagur í ensku B-deildinni í dag þegar liðin í 2. og 4. sæti mættust á Elland Road þar sem Fulham var í heimsókn hjá Leeds United.

West Bromwich Albion tapaði fyrir Brentford í gærkvöldi og því gat Leeds tyllt sér á toppinn með sigri í dag.

Patrick Bamford opnaði markareikninginn strax á 10.mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks.

Heimamenn voru svo sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum þar sem mörk frá Ezgjan Alioski og Jack Harrison tryggðu Leeds öruggan þriggja marka sigur áður en Neeskens Kebano var vikið af velli í liði gestanna á lokamínútunum.

Leeds með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar sjö umferðum er ólokið en Fulham er með 64 stig, tíu stigum minna en Leeds, í 4.sæti deildarinnar.

Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Millwall sem gerði markalaust jafntefli við Barnsley.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira