Úlfarnir gerðu góða ferð á Villa Park

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Dendoncker tryggði Úlfunum þrjú stig í dag.
Dendoncker tryggði Úlfunum þrjú stig í dag. vísir/Getty

Wolverhampton Wanderers hafði betur gegn Aston Villa í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór á Villa Park.

Eina mark leiksins var skorað á 62.mínútu þegar belgíski miðjumaðurinn Leander Dendoncker skoraði eftir undirbúning Jonny.

Úlfarnir fóru með sigrinum upp fyrir Manchester United í 5.sæti deildarinnar á meðan fallið blasir við Aston Villa sem hefur ekki unnið leik í júnímánuði.

Villa er í næstneðsta sæti deildarinnar á markatölu en hefur 27 stig líkt og Bournemouth og West Ham í næstu sætum fyrir ofan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira