Bíógestir í gamaldags sundferð BBI skrifar 28. september 2012 13:58
Á morgun fer hið svonefnda sundbíó fram á kvikmyndahátíðinni RIFF þegar kvikmyndin Back to the Future verður sýnd í Laugardalslaug. Í myndinni ferðast söguhetjan, Marty McFly, aftur í tíma til 6. áratugarins. Þar glímir hann við áskoranir þeirra tíma en myndin nær ákveðnum hápunkti þegar hann lendir inni á dansleik og kynnir alla viðstadda fyrir rokki og róli. Þessa eftirminnilegu senu má sjá á hlekknum hér að ofan. Skipuleggjendur RIFF stefna að því að ná fram svipuðu andrúmslofti í Laugardalslauginni þetta kvöld og endurvekja þannig tíðaranda sjötta áratugarins. Laugin hefur verið skreytt rækilega, djassband af gamla skólanum hitar upp og lindyhop dansarar taka nokkur spor áður en myndin hefst. Bíógestir geta því bókstaflega svamlað um í tíðaranda sjötta áratugarins meðan Marty McFly kynnir fólk í fortíðinni fyrir hjólabrettum og rokktónlist. Sundbíóið er fastur liður á kvikmyndahátíðinni RIFF og hefur verið mjög vinsælt, bæði meðal ungs fólks, fjölskyldufólks og erlenda gesta. „Í fyrra komust ekki allir að sem vildu," segir Jóhann Alfreið Kristinsson, umsjónarmaður sérviðburða RIFF. Sundbíóið fór fram í Sundhöllinni í fyrra en verður í þetta sinn í innilaug Laugardalslaugarinnar sem tekur allt að 400 gesti. Sýningin hefst klukkan átta í Laugardalslauginni. Miðinn kostar 1200 kr. og verður bæði seldur á vefsíðu hátíðarinnar og við innganginn.
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira