Moyes orðaður við Inter Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 26. október 2014 19:30 Moyes nýtur lífsins þó hann sé án starfs vísir/getty
Það er farið að hitna hressilega undir Walter Mazzarri sem þjálfara Inter frá Milanó í ítölsku A-deildinni í fótbolta. David Moyes fyrrum þjálfari Manchester United og Everton er orðaður við starfið. Inter mætir Cesena í deildinni í dag og tapi Inter stigum í leiknum er ekki talið ólíklegt að dagar Mazzarri hjá Inter verði taldir en liðið er sem stendur í níunda sæti deildarinnar sem þykir óásættanlegt hjá Inter. Moyes hefur látið hafa eftir sér að það heilli hann að reyna fyrir sér í þjálfun utan Bretlandseyja og er hann talinn vænlegur kostur fyrir Inter verði Mazzarri látinn fara.Massimo Moratti fyrrum eigandi og forseti Inter sagði af sér heiðursembætti sínu hjá félaginu á föstudaginn eftir að hann gagnrýndi Mazzarri opinberlega. Moratti fjölskyldan á enn þriðjung í félaginu en Erick Thohir meirihlutaeigandi í Inter stendur enn með þjálfaranum. Inter hafnaði í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur í Evrópudeildinni í ár. Væntingar félagsins eru að komast í Meistaradeildina og því víst að þolinmæðin fyrir slökum árangri verði senn á þrotum.
Ítalski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira