Innlent

Flestir vagnar Strætó aftur á kortersfresti frá og með 18. maí

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Strætó við Hlemm.
Strætó við Hlemm. Vísir/Vilhelm

Vegna aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur verið tekin ákvörðun um að hefja akstur samkvæmt sumaráætlun frá og með mánudeginum 18. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Frá því um miðjan mars minnkaði Strætó tíðni vagna sinna vegna minni eftirspurnar sökum samkomubanns sem miðaðist við tuttugu manns í rými auk tveggja metra reglunnar. Síðan þá hafa vagnarnir ekið samkvæmt laugardagsáætlun alla daga þegar vagnar eru almennt á hálftímafresti í stað kortersfresti.

Allar leiðir hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu munu í sumar aka samkvæmt óskertri áætlun fyrir utan leiðir 18, 24 og 28, en þær munu áfram aka á 30 mínútna fresti í sumar.

Næturakstur úr miðbænum um helgar mun áfram liggja niðri og þjónusta á landsbyggðinni verður áfram skert þar til annað verður tilkynnt.

Framhurðin áfram lokuð

Framhurð strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verður enn lokuð og farþegar munu áfram ganga inn um mið- eða aftari dyr vagnsins. Innra rými strætisvagnanna verður áfram skipt upp í tvo hluta. Borði er strengdur yfir fremsta hluta vagnanna til þess aðskilja svæði vagnstjóra og svæði farþega. Mælt er með því að greiða fargjaldið með Strætókorti eða Strætóappinu.

Áfram eru ítrekuð þau tilmæli að viðskiptavinir sýni varkárni í samskiptum og umgengni, að þeir þvoi hendur og spritti reglulega, hósti og hnerri í olnbogabót, takmarki snertingar á snertifleti og ferðist alls ekki með Strætó ef grunur leikur á smiti.

Fjöldatakmarkanir

Hámarksfjöldi farþega um borð í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verður áfram 30 manns.

Hópaferðir skólabarna og skipulagðar ferðir í íþrótta og tómstundastarfi eru undanþegnar þessum fjöldatakmörkunum. Skv. tilmælum sóttvarnalæknis þá eru engar takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og engar fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskóla aldri.

Skipulagðar hópaferðir barna í skóla eða tómstundum eru aðeins heimilar á virkum dögum milli klukkan 9-15:30.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×