Veigar Páll: Býst við að byrja inn á Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2007 16:00 Veigar Páll í leik með norska liðinu Stabæk. Mynd/Scanpix
Veigar Páll Gunnarsson hefur jafnað sig fyllilega á meiðslum sínum og segist búast við því að fá tækifæri í byrjunarliði landsliðsins gegn Dönum í næstu viku. „Það verður spennandi að sjá hvernig þetta verður nú þegar nýr landsliðsþjálfari er tekinn við," sagði Veigar Páll við Vísi en Ólafur Jóhannesson tók nýverið við starfi Eyjólfs Sverrissonar sem landsliðsþjálfari. Undir stjórn Eyjólfs fékk Veigar Páll fá tækifæri, sérstaklega í síðustu leikjunum sem hann stýrði. „Ég geri mér auðvitað vonir um að fá meiri tækifæri, jafnvel að byrja inn á. Það væri ekkert ólíklegt miðað við hvernig ég hef staðið mig með Stabæk á tímabilinu. Ég býst eiginlega við því," sagði hann. Veigar Páll meiddist á landsliðsæfingu fyrir leikinn gegn Lettum í síðasta mánuði og gat því ekki leikið með liðinu, hvorki gegn Lettlandi né Liechtenstein. Óttast var að um fremur alvarleg hnémeiðsli væri að ræða og að hann þyrfti jafnvel að fara í uppskurð vegna þeirra. „Þetta lagaðist eiginlega af sjálfu sér," sagði hann. „Það voru teknar myndir af hnénu heima en það sást ekkert á þeim. Það er þó ekki enn fullvitað hvað var nákvæmlega að en því hefur verið haldið fram að ég væri með klemmda taug. Það var þó engu að síður nóg að ég gæti ekki spilað í landsleikjunum." Veigar spilaði þó með Stabæk í fyrsta leik eftir landsleikjafríið en gat þá aðeins leikið í 60 mínútur. „Ég tók mér svo góða hvíld eftir þann leik og síðan þá hef ég ekki fundið fyrir þessu aftur."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira