Frír bjór og bollakaka fyrir þá sem mæta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2019 11:00 Stuðningsmenn Leicester City. Getty/Vichan Poti
Leicester City ætlar að halda upp á afmæli Vichai Srivaddhanaprabha með sérstökum hætti þegar liðið fær Bournemouth í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Vichai Srivaddhanaprabha var eigandi Leicester þar til að hann lést í þyrluslysi í október síðastliðnum ásamt fjórum öðrum fyrir utan King Power leikvanginn. Vichai hefði orðið 61 árs gamall 4. apríl.#lcfc fans attending #LeiBou are invited to celebrate our late Chairman’s birthday with a free beer or water and a cupcake on the Srivaddhanaprabha family. — Leicester City (@LCFC) March 28, 2019Þetta verður fyrsta afmæli Vichai Srivaddhanaprabha eftir að hann lést en eigandinn var mjög vinsæll og virkur þátttakandi í samfélaginu í Leicester. Hann var alltaf mjög gjafmildur í kringum afmælið sitt meðan hann lifði og stuðningsmenn Leicester City nutu alltaf góðs á því á heimaleikjum liðsins í kringum afmælið. Hápunkturinn á hans tíma var án efa þegar Leicester City kom öllum að óvörum og varð Englandsmeistari vorið 2016. Fjölskylda Vichai Srivaddhanaprabha vill minnast hans með því að halda í þessa hefð að koma færandi hendi í tilefni afmælisins. Til að minnast Vichai þá ætlar Leicester City að bjóða þeim sem mæta á leik Leicester og Bournemouth á King Power leikvanginum upp á bjór og bollaköku. Fjölskylda Srivaddhanaprabha mun taka á sig reikninginn. Þeir sem drekka ekki og vilja ekki bjór geta fengið vatn. Gestirnir verða líka að nýta þetta boð áður en leikurinn fer í gang (fyrir klukkan 14.45) en hann hefst klukkan þrjú á morgun. Það er líka tekið fram að það er bara eitt bjórglas og ein bollakaka á hvern miða. Getty/James Williamson
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira