Benzema bjargaði Evrópumeisturunum gegn botnliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjargvætturinn Benzema fagnar sigurmarkinu gegn Huesca.
Bjargvætturinn Benzema fagnar sigurmarkinu gegn Huesca. Vísir/Getty
Real Madrid þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna botnlið Huesca á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 3-2, Madrídingum í vil.

Karim Benzema skoraði sigurmarkið mínútu fyrir leikslok. Real Madrid hefur unnið báða leiki sína eftir að Zinedine Zidane tók aftur við liðinu.

Zidane kom á óvart með því að setja son sinn, Luca, í markið í stað Keylors Navas. Strákurinn fékk á sig mark strax á 4. mínútu þegar Cucho kom Huesca yfir.

Isco jafnaði fyrir Real Madrid á 25. mínútu og staðan var 1-1 í hálfleik. Dani Ceballos kom heimamönnum yfir á 62. mínútu en Xabier Etxeita jafnaði tólf mínútum síðar.

Flest benti til þess að botnliðið færi frá Santiago Bernabéu með stig en Benzema var á öðru máli. Á 89. mínútu skrúfaði hann boltann í fjærhornið og tryggði Evrópumeisturunum sigurinn.

Real Madrid er í 3. sæti deildarinnar. Liðið hefur unnið þrjá leiki í röð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira