Metáhugi á ársmiðunum hjá Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. maí 2019 19:00 Gylfi Þór Sigurðsson skorar hér á Old Trafford á síðasta tímabili. Getty/Charlotte Wilson
Manchester United vann kannski bara tvo af síðustu tíu leikjum sínum á tímabilinu en stuðningsmenn félagsins ætla ekki hoppa frá borði. Ársmiðar á heimaleiki United á Old Trafford á næstu leiktíð seldust upp á mettíma. Versta tímabil Manchester United í sögu ensku úrvalsdeildarinnar breytir ekki því að stuðningsmenn félagsins eru mjög bjartsýnir og áhugasamir um næstu leiktíð. Þetta verður fyrsta heila tímabil Ole Gunnar Solskjær með United liðið og það er von á miklum breytingum á leikmannahópnum í sumar. Ole Gunnar fær það verkefni að byggja upp nýtt lið og það gæti tekið sinn tíma. Hvort að það takist hjá honum eða að hann fái nægjanlega þolinmæði frá forráðamönnum félagsins verður að koma í ljós. Miðað við áhugann á miðum á leiki liðsins á tímabilinu 2019-20 þá er hugur í stuðningsmönnunum fyrir komandi tímabil. Alls voru 52 þúsund ársmiðar í boði og þeir hafa aldrei farið jafn fljótt samkvæmt frétt á Daily Mail. Old Trafford er stærsti leikvangurinn í ensku úrvalsdeildinni og tekur alls 76 þúsund manns í sæti. Manchester United ætlar líka að laga leikvanginn fyrir 3 milljónir punda í sumar en á næstu fimm árum munu öllum sætum vallarins vera skipt út og þau endurnýjuð. Manchester United endaði 32 stigum á eftir nágrönnum sínum í Manchester City sem unnu ensku deildina annað árið í röð. Með því að enda í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar þá missti United af sæti í Meistaradeildinni og tekur þess í stað þátt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira