Jafnt hjá Úlfunum í Portúgal

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Braga og Úlfarnir gerðu jafntefli í toppslag í K-riðli í Evrópudeildinni í kvöld.

Heimamenn í Braga komust yfir strax á sjöttu mínútu en þá datt Raul Jimenez í gírinn. Hann jafnaði metin á 14. mínútu og lagði svo upp tvö mörk á tveggja mínútna kafla eftir um hálftíma leik.

Portúgalirnir komust inn í leikinn á 64. mínútu með marki frá Paulinho og þeir jöfnuðu svo leikinn með marki Fransergio Fransergio á 79. mínútu.

Þannig lauk leik, með 3-3 jafntefli. Braga er í toppsæti riðilsins með 11 stig og Úlfarnir 10 þegar ein umferð er eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira