Enn eitt tapið hjá Arsenal

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Unai Emery er undir mikilli pressu
Unai Emery er undir mikilli pressu vísir/getty
Arsenal náði ekki að tryggja sér sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Frankfurt.

Pierre-Emerick Aubameyang kom Arsenal yfir í uppbótartíma og var útlitið ágætt fyrir Arsenal.

Daichi Kamada tók málin í sínar hendur og skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og tryggði Frankfurt sigurinn, lokatölur urðu 2-1.

Niðurstaðan þýðir að Arsenal hefur ekki unnið í sjö síðustu leikjum sínum og er pressan orðin nokkur á Unai Emery.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira