Erlent

Létust þegar flug­vél hrapaði í Kanada

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Kingston í Ontario.Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Frá Kingston í Ontario.Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty
Nokkrir eru látnir eftir að smærri flugvél hrapaði í skóglendi skammt frá bænum Kingston í Ontario í austurhluta Kanada í gærkvöldi.

Lögregla vill ekki gefa upp fjölda þeirra sem voru um borð í vélinni að svo stöddu. Vilji lögregla ljúka rannsókn á vettvangi fyrst.

Vélin var af gerðinni Piper PA-32R, sem er eins hreyfils vél og getur flutt sex manns.

Vélin tók á loft frá Buttonville-flugvellinum í Toronto og var á leiðinni til Kingston.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×