Skoðun

Sam­göngu­sátt­málinn og sam­staðan í þágu íbúa

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar
Ánægjulegt var að finna þann meðbyr sem hugmyndir Viðreisnar nutu á aðalfundi samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem fram fór nýverið. Hugmyndir um gagnsæi og lýðræði, þar sem samtal bæjarfulltrúa þvert á flokka er styrkt á vettvangi samtakanna með það að markmiði að styðja við og ná fram frekari framþróun á þessu mikilvæga svæði, þar sem þorri landsmanna velur sér búsetu.

Sameiginlegir hagsmunir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu eru miklir og mikilvægir fyrir vaxandi íbúabyggð, sem vill og þarf að vera samkeppnishæf jafnt innanlands sem utan. Samgöngumál er eitt stærsta málið sem sameinar okkur, á því leikur enginn vafi.

Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu veljum okkur búsetu út frá ólíkum forsendum. Þjónusta við börn skiptir barnafjölskyldur óneitanlega mjög miklu máli, skólaval, íþrótta- og tómstundastarf sem styður við þroska barna er þar í forgrunni á meðan fjarlægðin að heiman til vinnu skiptir aðra meira máli, enda tíminn dýrmætur fyrir okkur öll. Þá skipta almenningssamgöngur gríðarlega miklu máli. Sumir nýta þær nú þegar. Aðrir velja einkabílinn sem sinn samgöngumáta, en eru fúsir til að velja almenningssamgöngur, ef þær mæta þörfum þeirra.  

Því er það mikið fagnaðarefni þegar ólík sjónarmið og áherslur hvað varðar samgöngur ná saman í heildstæðri leið sem mun auka lífsgæði allra íbúa á höfuðborgarsvæðinu til muna.

Þá er vert að nefna sérstaklega hversu mikilvægt það er að okkur hafi tekist að sýna framsýni í ákvörðunum, með hag kynslóðanna sem á eftir koma í forgrunni.

Breyttar samgönguvenjur ungs fólks eru staðreynd og þá þróun má ekki vanmeta. Fleiri en nokkru sinni velja hjólreiðar sem samgöngumáta. Hjólastígar hafa þegar fengið meira rými og haldið verður áfram að styðja við þann valkost til samgangna.

Ungu fólki verður sem betur fer sífellt meira umhugað um umhverfismál. Það sér í hendi sér að það sjálft verði að bregðast við og spyrna við fótum. Loftslagsbreytingar eru þegar staðreynd, en ekki vandi komandi kynslóða. Því skiptir öllu máli að viðhorf ungs fólks séu endurspegluð í ákvarðanatöku í jafn stóru máli og framtíðarskipan almenningssamgangna er.

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×