Öruggur sigur Man. Utd og far­seðill í 32-liða úr­slitin | Marka­laust hjá Herði og Arnóri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Marcus Rashford fagnar í kvöld.
Marcus Rashford fagnar í kvöld. vísir/getty
Manchester United spilaði glimrandi fínan fótbolta er liðið vann öruggan 3-0 sigur á Partizan Belgrad í L-riðli Evrópudeildarinnar.

United er því komið í 32-liða úrslitin en þeir eru með tíu stig á meðan Partizan Belgrad er með fjögur stig. Tvær umferðir eru eftir af riðlinum.

Eftir 22 mínútur kom fyrsta löglega mark leiksins. Þá skoraði Mason Greenwood en áður höfðu tvö mörk verið dæmd af, bæði vegna rangstöðu.

Anthony Martial bætti við marki eftir frábæran sprett á 33. mínútu og á fjórðu mínútu síðari hálfleiks kláraði Marcus Rashford leikinn með laglegu skoti.







Hörður Björgvin Magnússon, Arnór Sigurðarson og félagar í CSKA Moskvu náðu í sitt fyrsta stig í H-riðlinum er liðið gerði markalaust jafntefli við Ferencvaros á útivelli.

Báðir voru þeir í byrjunarliði Rússana en Hörður Björgvin fór af velli er tæpar tíu mínútur voru til leiksloka.

Raul Jimenez tryggði Wolves 1-0 sigur á Slovan Bratislava á heimavelli en sigurmarkið kom í uppbótartíma. Wolves með níu stig og komnir með annan fótinn í 32-liða úrslitin.







Steven Gerrard og lærisveinar hans í Rangers gerðu sér lítið fyrir og unnu Porto á heimavelli, 2-0, með mörkum frá þeim Alfredo Morelos og Steven Davis.

Rangers er með sjö stig líkt og Young Boys en Feyenoord og Porto eru með fjögur stig. Mögnuð spenna í G-riðlinum.







Úrslit dagsins:

A-riðill:

Apoel - Qarabag 1-1

Dudelange - Sevilla 2-5

B-riðill:

FCK - Dynamo Kiev 1-1

Lugano - Malmö 0-0

C-riðill:

Basel - Getafe 2-1

Krasnodar - Trabzonspor 3-1

D-riðill:

LASK - PSV 4-1

Rosenborg - Sporting 0-2

E-riðill:

CFR Cluj - Rennes 1-1

Lazio - Celtic 1-2

F-riðill:

Standard Liege - Eintracht Frankfurt 2-1

G-riðill:

Feyenoord - Young Boys 1-1

Rangers - Porto 2-0

H-riðill:

Espanyol - Ludogorets 6-0

Ferncvaros - CSKA Moskva 0-0

I-riðill:

Oleksandriya - Saint Etienne 2-2

Wolfsburg - Gent 1-3

J-riðill:

Borussia Mönchengladbach - Roma 2-1

Wolfsberger - Instanbul Basaksehir 0-3

K-riðill:

Braga - Besiktas 3-1

Wolves - Slovan Bratislava 1-0

L-riðill:

Man. Utd - Partizan Belgrad 3-0

Astana - AZ Alkmaar 5-0

A-riðill:

Apoel - Qarabag 1-1

Dudelange - Sevilla 2-5



B-riðill:

FCK - Dynamo Kiev 1-1

Lugano - Malmö 0-0



C-riðill:

Basel - Getafe 2-1

Krasnodar - Trabzonspor 3-1



D-riðill:

LASK - PSV 4-1

Rosenborg - Sporting 0-2



E-riðill:

CFR Cluj - Rennes 1-1

Lazio - Celtic 1-2



F-riðill:

Standard Liege - Eintracht Frankfurt 2-1

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira