Fótbolti

Ter Stegen mun spila með Þjóðverjum í landsleikjaglugganum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Joachim Löw ræðir við Marc-Andre ter Stegen á æfingu þýska landsliðsins
Joachim Löw ræðir við Marc-Andre ter Stegen á æfingu þýska landsliðsins vísir/getty
Joachim Löw segir að Marc-Andre ter Stegen muni fá að spila í komandi landsleikjaglugga en Manuel Neuer sé ennþá aðalmarkvörður þýska landsliðsins.

Ter Stegen og Neuer hafa átt í smá deilum í fjölmiðlum síðustu vikur. Ter Stegen lýsti yfir vonbrigðum sínum með að fá ekkert að spila í síðasta landsleikjahléi og Neuer gagnrýndi hann fyrir þau ummæli.

Þýskaland mætir Argentínu í vináttulandsleik í næstu viku og spilar svo leik gegn Eistum í undankeppni EM 2020.

Löw tilkynnti hóp sinn fyrir leikina tvo í gær og sagði þar að Neuer væri fyrirliði liðsins og því markmaður númer 1, nema eitthvað stórkostlegt gerðist.

Hann sagði hins vegar að Ter Stegen muni fá að spila leikinn gegn Argentínu, Neuer komi svo aftur inn í liðið gegn Eistum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×