Kane með þrennu í auðveldum sigri Englands

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Markaskórnir voru á sínum stað hjá Harry Kane
Markaskórnir voru á sínum stað hjá Harry Kane vísir/getty
Englendingar sitja með fullt hús stiga á toppi A-riðils undankeppni EM 2020 eftir öruggan sigur á Búlgaríu á heimavelli í dag.

Markahrókurinn Harry Kane skoraði þrennu í leiknum og Raheem Sterling gerði eitt mark í 4-0 sigri Englands sem hefur nú unnið þrjá fyrstu leiki sína í keppninni.

Enska liðið þurfti lítið að hafa fyrir sigrinum í dag og gat Gareth Southgate gefið hinum unga Mason Mount sýnar fyrstu A-landsliðsmínútur undir lok leiksins.

Úkraínumenn þurftu ekki heldur að hafa mikið fyrir því að leggja Litháen að velli.

Oleksandr Zinchenko kom Úkraínu yfir á sjöundu mínútu og Marlos Bonfim tvöfaldaði forystuna áður en fyrri hálfleikur var úti.

Ruslan Malinovskiy gulltryggði svo sigurinn í seinni hálfleik og eru Úkraínumenn með 13 stig eftir fimm leiki í B-riðli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira