Frakkar aftur á toppinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Heimsmeistararnir voru ekki í vandræðum í kvöld
Heimsmeistararnir voru ekki í vandræðum í kvöld vísir/getty
Frakkar unnu öruggan sigur á Albaníu í undankeppni EM 2020 í kvöld og tóku þar með toppsæti H-riðils aftur af Íslendingum.

Ísland hafði farið á topp riðilsins fyrr í kvöld með því að vinna Moldóvu á Laugardalsvelli en bæði Tyrkland og Frakkland áttu eftir að spila leiki sína í umferðinni.

Frakkar fengu Albani í heimsókn á Stade de France og voru ekki lengi að komast yfir, það gerði Kingsley Coman á áttundu mínútu. Olivier Giroud tvöfaldaði forskot Frakka á 27. mínútu.

Undir lok hálfleiksins var dæmd vítaspyrna á Albaníu en Antoine Griezmann skaut í þverslána úr spyrnunni. Griezmann bætti fyrir mistök sín með því að leggja upp þriðja mark Frakka fyrir Coman á 68. mínútu.

Jonathan Ikone gekk endanlega frá leiknum á 85. mínútu. Albanir fengu sárabótamark á síðustu mínútu leiksins þegar þeir fengu vítaspyrnu en markið kom of seint til þess að skipta máli.

Lokatölur á Stade de France urðu 4-1 fyrir Frakka. Þeir setjast því á topp riðilsins á markatölu, með 12 stig líkt og Tyrkir og Íslendingar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira