Bíó og sjónvarp

Ný stikla fyrir Jókerinn komin

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fortíð Jókersins er myrk ef marka má nýjustu stikluna fyrir kvikmyndina Joker.
Fortíð Jókersins er myrk ef marka má nýjustu stikluna fyrir kvikmyndina Joker. Warner Bros.

Nýjasta og síðasta stiklan fyrir myndina Joker er komin út en myndin mun koma í almennar sýningar á Íslandi þann 4. október.

Nokkrir stórleikarar fara með hlutverk í myndinni en Joaquin Phoenix fer með aðalhlutverkið í myndinni, hlutverk Arthurs Fleck eða Jókersins. Persóna Jókersins er ekki ný af nálinni en hann er best þekktur sem skúrkurinn í sögunni um Leðurblökumanninn. Þessi mynd er hins vegar forsaga persónunnar, sagan um það hvernig Jókerinn „verður til“.

Robert De Niro fer með hlutverk Murray Franklin sem er spjallþáttastjórnandi en miðað við nýjustu stikluna virðist hlutverk hans skipta miklu máli þegar kemur að þróun persónu Jókersins.

Íslenska tónskáldið Hildur Guðnadóttir, sem vakti mikla athygli fyrir hljóðrás sína fyrir þættina Chernobyl, semur tónlistina fyrir myndina en hún er ekki eina íslenska tónskáldið sem kemur að myndinni. Veigar Margeirsson tónskáld samdi tónlistina fyrir stikluna sjálfa sem er áberandi í henni.

Sjá nánar:Veigar á meðal fremstu manna á gullöld Hollywood-stiklanna

Sjá má stikluna fyrir Jókerinn hér að neðan.

Fréttin var uppfærð klukkan 11:12.


Tengdar fréttir

Þurfti að skilja búnað eftir vegna geisla­virkni

"Mér leið eins og það væri mjög mikilvægt að minna á þessa atburði í dag því mér fannst eins og ungt fólk vissi ekki um það sem gerðist,“ sagði Hildur Guðnadóttir, tónskáld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×