Annar 1-0 sigur hjá Atlético Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Joao Felix lagði upp sigurmarkið fyrir Vitolo.
Joao Felix lagði upp sigurmarkið fyrir Vitolo. vísir/getty
Atlético Madrid er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í spænsku úrvalsdeildinni.

Í kvöld vann Atlético 0-1 sigur á Leganés á útivelli. Atlético vann Getafe með sömu markatölu í 1. umferðinni.

Varamaðurinn Vitolo skoraði eina mark leiksins á 71. mínútu. Hann fékk boltann þá frá portúgalska ungstirninu Joao Felix og skoraði með skoti í fjærhornið.



Að venju var vörn Atlético sterk og liðið hélt hreinu annan leikinn í röð. Lokatölur 0-1, Atlético í vil.

Næsti leikur Atlético er gegn Eibar eftir viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira