Íslenski boltinn

Patrick ræddi samninginn, gengi Vals í sumar og tímann í Moldóvu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Patrick Pedersen mætti á sínu fyrsta æfingu með Val í dag eftir að hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið fyrr í vikunni.

Danski framherjinn, sem hefur áður gert það gott með Val, kemur til félagsins frá Sheriff í Moldóvu en hann æfði með Íslandsmeisturunum í fyrsta sinn í dag.

„Ég kann vel við Val, vel við landið og fólkið í kringum félagið. Mér þykir gott að vera hérna,“ sagði Patrick í samtali við Arnar Björnsson í dag.

Patrick sem var markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð segir að hann muni gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að koma Val aftur í kringum toppinn.

„Þess vega kom ég aftur og ég mun gera mitt besta til þess að hjálpa liðinu. Þeir vita hvað ég get og ég þekki liðið og veit hvernig það spilar. Vonandi get ég hjálpað liðinu.“

Flestir leikmennirnir í Vals-liðinu í ár spiluðu einnig með liðinu síðustu ár svo framherjinn ætti að þekkja flest andlitin í hópnum.

„Ég þekki þá flesta en ég sé að þeir hafa fengið nokkra nýja leikmenn. Þeir verða auðvitað að aðlagast og það er kannski þess vegna sem þeir hafa ekki verið nógu góðir á þessari leiktíð en þetta er að koma. Ég veit það.“

Daninn magnaði segir að það hafi ekki verið erfitt val þegar að Valur kom inn í myndina.

„Það var ekki svo erfitt fyrir mig að velja. Það var auðvelt. Ég kann vel við mig hérna og það er gott að vera kominn aftur,“ en hversu langur er samningurinn við Val?

„Ég samdi til fjögurra ára og ég vona að ég verði hérna allan tímann. Maður veit aldrei í fótboltanum. Ég er hér og einbeiti mér að Val. Svo sjáum við til.“

Patrick skoraði þrjú mörk í þeim fjórtán leikjum sem hann spilaði í Moldóvu en hann er glaður að vera kominn á Hlíðarenda á nýjan leik.

„Þetta var öðruvísi. Öðruvísi heimur og hugsunarhátturinn er öðruvísi þar. Þetta var erfiður tími fyrir mig. Ég var inn og út úr liðinu. Þetta var erfitt en nú er ég kominn aftur og er ánægður með það.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×