Íslenski boltinn

Víkingar búnir að vera mest allra með boltann í Pepsi Max deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar hafa verið mikið með boltann í fyrstu sex umferðunum.
Víkingar hafa verið mikið með boltann í fyrstu sex umferðunum. Vísir/Bára
Víkingsliðið hefur haldið boltanum lengst allra liða samkvæmt tölfræði Instat úr fyrstu sex umferðum Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Topplið Skagamanna vill að sama skapi ekki vera með knöttinn.  

Víkingar hafa ekki unnið leik í Pepsi Max deildinni og eru aðeins stigi fyrir ofan botnsæti deildarinnar eftir sex umferðir.

Það kemur því örugglega mörgum á óvart að sjá Víkingsliðið á toppi listans yfir það lið sem hefur verið mest með boltann.  

Víkingar hafa verið með boltann að meðaltali í 31 mínútu og 40 sekúndur í hverjum leik í fyrstu sex umferðunum.

Næstir á eftir Víkingi eru FH-ingar sem hafa haldið boltanum að meðaltali í 31 mínútu og 34 sekúndur.

Það munar ekki miklu á efstu tveimur liðunum en það er mun lengra niður í þriðja sætið þar sem sitja Valsmenn. Valur hefur haldið boltanum að meðaltali í 29 mínútu og 54 sekúndur en Stjörnumenn koma síðan í fjórða sætinu, hafa verið með boltann að meðaltali í 29 mínútur og 13 sekúndur.

Það vekur jafnframt athygli að ekkert félag hefur verið minna með boltann í deildinni en topplið ÍA. Skagamenn hafa aðeins haldið boltanum innan síns liðs í 20 mínútur og 46 sekúndur að meðaltali í leik. Skagamenn eru langt á eftir næsta liði sem er botnlið ÍBV.

ÍBV og HK eru fyrir ofan Skagamenn en það eru lið sem sitja við botn deildarinnar ásamt Víkingum og Valsmönnum.

Þessi taktík að leyfa andstæðingum að vera með boltann hefur gengið upp hjá Skagaliðinu sem er með 16 stig og þriggja stiga forystu á toppi Pepsi Max deildarinnar.

Sjöunda umferð deildarinnar fer fram um helgina, einn leikur á laugardaginn og fimm leikir á sunnudaginn.

Stöð 2 Sport sýnir þrjá leiki, leik Grindavíkur og Víkings klukkan 14.00 á morgun laugardag og svo tvo leiki á sunnudaginn. Á sunnudaginn verður fyrst sýndur beint leikur Breiðabliks og FH klukkan 17.00 og svo leikur Stjörnunnar og Vals klukkan 19.15. Pepsi Max Mörk karla eru síðan klukkan 21.15 á sunnudagskvöldið.

Mínútur að meðaltali með boltann í fyrstu sex umferðum Pepsi Max karla 2019:

1. Víkingur 31 mínútur : 40 sekúndur

2. FH 31:34

3. Valur 29:54

4. Stjarnan 29:13

5. KA 27:15

6. Fylkir 27:02

7. Breiðablik 26:21

8. KR 26:03

9. Grindavík 25:19

10. HK 25:10

11. ÍBV 23:19

12. ÍA 20:46




Fleiri fréttir

Sjá meira


×