Enski boltinn

Halda sérstaka Liverpool messu þremur tímum fyrir leik á sunnudaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nú er bara spurningin hvort þessi messa hjálpi eitthvað þeim Sadio Mane, Jordan Henderson og Georginio Wijnaldum  í leiknum mikilvæga á sunnudaginn kemur.
Nú er bara spurningin hvort þessi messa hjálpi eitthvað þeim Sadio Mane, Jordan Henderson og Georginio Wijnaldum í leiknum mikilvæga á sunnudaginn kemur. Getty/John Powell
Liverpool á enn möguleika á því að vera enskur meistari í fyrsta sinn í 29 ár en til að svo verði þurfa hlutirnir að falla með liðinu á sunnudaginn.

Liverpool þarf að vinna sinn leik á móti Wolves á sama tíma og Manchester City tapar stigum á útivelli á móti Brighton & Hove Albion. Manchester City er með eins stigs forskot og betri markatölu og leikmenn liðsins þurfa því aðeins að treysta á sig sjálfa.

Stuðningmenn Liverpool upplifðu kraftaverk á Anfield á þriðjudaginn var þegar liðið vann upp 3-0 forystu Barcelona frá því í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni. Liverpool vann hið geysisterka lið Barcelona 4-0 og tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað árið í röð.

Nú þurfa Liverpool menn á frekari kraftaverkum að halda og þá leita þeir til æðri máttarvalda.

Elvar Geir Magnússon á fotbolti.net segir frá því að það fari fram Liverpoolmessa í Seljakirkju fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpoolmessan hefst klukkan ellefu fyrri hádegi á sunnudag eða þremur tímum áður en flautað verður til leiks í 38. og síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar 2018-19.  Messan mun vera í klukkutíma og eftir það munu Liverpool menn fara að undirbúa sig enn frekar fyrir þennan mögulega sögulega dag.

„Liverpoolmenn eru aldrei einir á ferð, allra síst í þeim stórleikjum sem framundan eru! Því verður efnt til Liverpoolmessu í Seljakirkju á sunnudag, þar sem Liverpoolmaðurinn sr. Ólafur Jóhann þjónar, Dagur Sigurðsson syngur og Bóas Gunnarsson spilar á gítar! YNWA!" segir í lýsingu á komandi Liverpoolmessu á Facebook.

Liverpool varð síðast enskur meistari voru 1990 og þá í átjánda skiptið. Manchester City vann ensku deildina í fyrra og getur því unnið hana annað árið í röð.

Leikur Liverpool og Wolves verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 á sunnudaginn klukkan 14.00 en leikur Brighton & Hove Albion og Manchester City verður sýndur á sama tíma á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×