Enski boltinn

Þurfa að fara fjallabaksleiðina

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Svekktir Arsenal-menn.
Svekktir Arsenal-menn. vísir/getty
Það er ljóst að Arsenal þarf að fara erfiðu leiðina til að afla sér þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta ári eftir úrslit helgarinnar. Erkifjendur Arsenal í Tottenham misstigu sig í enn eitt skiptið um helgina en Arsenal gat ekki innbyrt stigin þrjú gegn slöku liði Brighton á heimavelli.

Þegar ein umferð er eftir af ensku úrvalsdeildinni eru Skytturnar þremur stigum á eftir Tottenham og þyrftu þar að auki að vinna upp átta marka mun þegar þeir heimsækja Burnley á sama tíma og Tottenham tekur á móti Burnley um næstu helgi.

Það er því líklegra að Arsenal þurfi að vinna Evrópudeildina til þess að komast aftur í deild þeirra sterkustu í Evrópu. Arsenal er í lykilstöðu þar eftir 3-1 sigur á Valencia fyrr í vikunni. Verður Arsenal því að teljast ansi líklegt til sigurs með Unai Emery í brúnni sem hefur þrisvar stýrt liði til sigurs í Evrópudeildinni.

Það kom loks að því að leikjaálagið sem fylgir því að leika í Evrópudeildinni á fimmtudögum næði til Arsenal. Aðeins eitt stig er uppskeran í síðustu fjórum leikjum hjá Arsenal og fjögur stig af átján mögulegum í síðustu sex leikjum.

Möguleikinn var fyrir hendi á að skjótast fram úr nágrannaliðunum Chelsea og Tottenham en Arsenal glutraði því niður með spilamennskunni í deildinni undanfarnar vikur.

„Það er hægt að segja ýmislegt um vandræði okkar á þessu tímabili en við verðum að gleyma þessu og horfa á leikinn gegn Valencia á fimmtudaginn. Við náðum ekki okkar markmiðum í deildinni en það er of snemmt að fara að tala um markmið næsta tímabils,“ sagði Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal, vonsvikinn eftir leikinn í gær.

„Evrópudeildin er allt sem er eftir fyrir okkur, það er leiðin okkar inn í Meistaradeildina á næsta ári þar sem við viljum vera á næsta ári. Fremst í forgangsröðuninni er enska úrvalsdeildin og við erum langt á eftir toppliðunum en ætlum að minnka bilið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×