Enski boltinn

Sjáðu stórbrotið mark Kompany sem skaut City nær titlinum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guardiola var ánægður með fyrirliðann sinn.
Guardiola var ánægður með fyrirliðann sinn. vísir/getty
Manchester City er einum sigri frá Englandsmeistaratitlinum í fótbolta eftir 1-0 sigur á Leicester í gærkvöldi.

Sigurinn á Leicester setur City í þá stöðu að sigur gegn Brighton í lokaleiknum á útivelli tryggir þeim titilinn annað árið í röð.

Það tók þá tíma að brjóta niður varnarmúr Leicester en það var varnarmaður og fyrirliðinn Vincent Kompany sem skoraði með þrumufleyg.

Markið má sjá hér að neðan.



Klippa: FT Manchester City 1 - 0 Leicester



Fleiri fréttir

Sjá meira


×