Enskur úrslitaleikur í Evrópudeildinni eftir vítaspyrnukeppni á Brúnni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. vísir/getty
Chelsea er komið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar eftir sigur á Eintracht Frankfurt í vítaspyrnukeppni á Stamford Bridge í dag.

Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og eftir venjulegan leiktíma var staðan 1-1. Ekkert var skorað í framlengingunni og réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni þar sem Kepa var hetjan.

Eftir frábæran undirbúning Eden Hazard skoraði Ruben Loftus-Cheek fyrsta mark leiksins á 28. mínútu en færið kláraði Englendingurinn vel eftir laglegan sprett Belgans.

Chelsea var 1-0 yfir í hálfleik en á fjórðu mínútu síðari hálfleiks skoraði hinn funheiti framherji, Luka Jovic, enn eitt markið á þessari leiktíð eftir að boltinn hrökk inn fyrir vörn Chelsea.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. Chelsea náði að koma boltanum í netið á 115. mínútu er Cesar Azpilicueta skallaði boltann í netið en markið var dæmt af.

Í endursýningu sást að það var hárréttur dómur en Kevin Trapp, markvörður þeirra þýsku, var með hendur á boltanum. Ekkert mark var skorað í framlengingunni og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni.







Fyrirliðinn Cesar Azpilicueta lét verja frá sér en Kepa gerði sér lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur Frankfurt í röð og tryggði Chelsea þar með í úrslit.

Chelsea er því komið í úrslitaleikinn sem leikinn verður í Bakú þann 29. maí. Mótherjinn verður Arsenal.

Vítaspyrnukeppnin í heild sinni:

Sébastien Haller skorar fyrir Frankfurt, 0-1

Ross Barkley skorar fyrir Chelsea, 1-1

Luka Jovic skorar fyrir Frankfurt, 1-2

Kevin Trapp ver frá Cesar Azpilicueta, 1-2

Jonathan de Guzmán skorar fyrir Frankfurt, 1-3

Jorginho skorar fyrir Chelsea, 2-3

Kepa ver frá Martin Hinteregger, 2-3

David Luiz skorar fyrir Chelsea, 3-3

Kepa ver frá Gonçalo Paciência, 3-3

Eden Hazard skorar fyrir Chelsea, 3-4

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira