Skalli Alonso bjargaði Chelsea í Prag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alonso stangar boltann í netið.
Alonso stangar boltann í netið. vísir/getty
Chelsea er með naumt forskot eftir fyrri leikinn gegn Slavia Prag í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld en Chelsea vann fyrri leik liðanna 1-0.

Eina mark leiksins kom ekki fyrr en á 86. mínútu. Willian tók aukaspyrnu sem rataði beint á kollinn á Marcus Alonso sem stangaði boltann í netið. Lokatölur 1-0.

Benfica vann 4-2 sigur á Eintracht Frankfurt en hinn nítján ára gamli Joao Felix skoraði þrennu fyrir Benfica. Þjóðverjarnir voru einum færri frá 20. mínútu og hafa verk að vinna.







Valencia vann svo 3-1 sigur á Villareal í Spánarslag. Valencia komst í 1-0 en Santi Cazorla jafnaði fyrir Villareal. Valencia skoraði svo mörk í uppbótartíma og er í góðri stöðu fyrir síðari leikinn.

Úrslit kvöldsins:

Villareal - Valencia 1-3

Benfica - Eintracht Frankfurt 4-2

Arsenal - Napoli 2-0

Slavia Prag - Chelsea 0-1

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira