Erlent

Mikil spenna í loftinu þegar Finnar kjósa nýtt þing

Atli Ísleifsson skrifar
Jussi Halla-aho, formaður Sannra Finna, greiddi atkvæði í Helsinki í morgun.
Jussi Halla-aho, formaður Sannra Finna, greiddi atkvæði í Helsinki í morgun. epa
Kjörstaðir opnuðu í Finnlandi klukkan 9 að staðartíma í morgun, en þingkosningar fara fram í landinu í dag. Mikil spenna er vegna kosninganna þar sem fjórir flokkar hafa mælst með á bilinu 14 til 19 prósent fylgi í könnunum.

Sú spurning sem vofir einna helst yfir er hvort og þá hvaða flokkur gæti hugsað sér að mynda stjórn með þjóðernisflokknum Sönnum Finnum sem stefna í að verða næststærstir á þingi. Flokkurinn hefur rekið harða stefnu í innflytjendamálum og hefur fylgi þeirra aukist umtalsvert síðustu vikurnar fyrir kosningar. Alls eiga tvö hundruð þingmenn sæti á finnska þinginu.

Kannanir benda til að Jafnaðarmenn, sem hafa verið í stjórnarandstöðu síðustu ár, verði stærstir á þingi, en gangi kannanir eftir mun enginn flokkur ná að rjúfa 20 prósenta múrinn. Um þriðjungur finnskra kjósenda hefur nú þegar greitt atkvæði utan kjörfundar.

Antti Rinne er formaður finnskra Jafnaðarmanna.Getty

Sagði af sér í mars

Miðflokkur Juha Sipilä forsætisráðherra, Sameiningarflokkurinn og Sannir Finnar mynduðu stjórn eftir kosningarnar 2015. Eftir átök innan flokks Sannra Finna árið 2017 sagði rúmur helmingur þingmanna flokksins, þar með talið formaðurinn og utanríkisráðherrann Timo Soini, skilið við þingflokkinn og mynduðu nýjan flokk, Bláa framtíð. Sá flokkur átti þá áfram sæti í ríkisstjórn Sipilä, en þeir sem eftir voru í þingflokki Sannra Finna gengu í stjórnarandstöðu.

Sjá einnig: Inn­flytj­enda- og lofts­lags­mál á­berandi í að­draganda finnsku kosninganna

Sipilä og stjórn hans sagði af sér í síðasta mánuði eftir að þeim mistókst að koma breytingum á heilbrigðiskerfi landsins í gegnum þingið. Hefur Sipilä leitt starfsstjórn síðan.

Heilbrigðismál, innflytjendamál og loftslagsmál hafa verið einna helst áberandi í kosningabaráttunni.

Kjörstaðir munu loka klukkan 20 að finnskum tíma, eða 17 að íslenskum tíma. Finnska ríkissjónvarpið hyggst birta útgönguspá sína milli klukkan 18:30 og 19 að íslenskum tíma.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×