Stormur væntanlegur og gul viðvörun á Snæfellsnesi Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. apríl 2019 07:47 Svona leit vindaspáin síðdegis á landinu út í morgun. Skjáskot/Veðurstofa íslands „
Frekar máttlaus“ skil nálgast nú úr vestri og er útlit fyrir milda og allhvassa sunnanátt um landið vestanvert, en þó gæti slegið í storm á norðanverðu Snæfellsnesi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá er gul viðvörun Veðurstofu í gildi á Breiðafirði fram til 18 í kvöld. „Þar [á Snæfellsnesi] vill vindurinn oft magnast upp í sunnanáttinni og gæti orðið hviðótt þar fram eftir degi. Það er ekki mikil úrkoma sem fylgir þessum skilum og í raun þurrt að kalla fram á kvöld þegar byrjar að rigna eða slydda allra vestast. Fyrir norðan og austan stefnir í rólegra og tíðindaminna veður, hægari vind og bjartviðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun dregur svo vel úr vindinum en áfram verður einhver væta um vestanvert landið og hiti víða yfir frostmarki. Um helgina er útlit fyrir frekar hæga austlæga átt og að mestu þurrt veður en strekkingsvind með suðurströndinni og líkur á lítilsháttar vætu þar.Veðurhorfur á landinuGengur í sunnan 10-20 m/s með morgninum, hvassast á Snæfellsnesi. Skýjað og úrkomulítið S- og V-til, en rigning eða slydda vestast undir kvöld. Hægari og bjartviðri NA- og A-lands. Hlýnandi veður, hiti 1 til 6 stig seinni partinn, en vægt frost NA-til.Breytileg átt 3-8 á morgun og lítilsháttar væta V-lands, en áfram bjart N- og A-til. Hiti breytist lítið. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Sunnan 3-10 m/s og dálítil rigning eða slydda af og til V-lands, en bjartviðri N- og A-til. Hiti 0 til 5 stig. Á föstudag:Hæg norðaustlæg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum um landið norðaustanvert. Vægt frost NA-til, en hiti upp í 5 stig með S- og V-ströndinni. Á laugardag, sunnudag og mánudag:Austlæg átt og lítilsháttar væta með S-ströndinni, skýjað A-til, en annars víða léttskýjað. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag:Útlit fyrir hæga breytilega átt á landinu og þurrt veður.
Veður Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Fleiri fréttir Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Kvöldfréttir: Bjarni Ben og Halla Gunnars í beinni og fjöldafundur „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Sjá meira