Segja að Heimir Hallgríms sé að fá Wilfried Bony til sín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2019 12:00 Wilfried Bony fagnar marki með Gylfa Sigurðssyni. Getty/Mike Hewitt
Wilfried Bony var frábær hjá Swansea City í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma og nú gæti Fílabeinsstrendingurinn verið á leiðinni til Al-Arabi í Katar. Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al-Arabi og er á sínu fyrsta tímabili í Katar. Heimir myndi heldur betur styrkja framlínu liðsins með því að fá Bony inn í liðið. BBC og aðrir enskir fjölmiðlar segja frá þessum mögulegum vistaskiptum Wilfried Bony.#Swans City striker Wilfried Bony is close to joining Qatari club Al-Arabi on loan. More here https://t.co/mRWrBX9j00pic.twitter.com/bINFgEQWqa — BBC Sport Wales (@BBCSportWales) January 29, 2019Wilfried Bony fór á kostum með Swansea City á árunum 2013 til 2015 og skoraði mörg mörk eftir stosendingar frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Bony hefur hins vegar ekki fundið sig á þessu tímabili og hefur ekki verið í hóp í undanförnum tveimur leikjum. Bony er orðinn þrítugur og myndi koma til Al-Arabi á láni frá Swansea City. Swansea City vill losa sig við samning Fílabeinsstrendingsins sem hefur í kringum 120 þúsund pund í vikulaun eða tæpar 19 milljónir íslenskra króna. Swansea City keypti Wilfried Bony á tólf milljónir punda frá Manchester City árið 2017 en hafði selt hann til City fyrir 28 milljónir tveimur árum áður. Wilfried Bony hefur verið að kom til baka eftir hnémeiðsli sem héldu honum frá í tíu mánuði en Bony hefur skorað eitt mark í sjö leikjum fyrir Graham Potter á þessu tímabili. Al-Arabi er í sjötta sæti deildarinnar en hefur aðeins skorað 17 mörk í 15 leikjum. Liðið fyrir ofan er með 25 mörk og liðið fyrir neðan hefur skorað 27 mörk. Toppliðið er síðan með 65 mörk eða 48 mörkum meira en lið Al-Arabi.
Fótbolti Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira