Heimir Hallgríms þegar búinn að henda út tólf leikmönnum hjá Al Arabi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2019 15:00 Heimir Hallgrímsson. Vísir/Getty
Heimir Hallgrímsson var ekkert að bíða með að taka til í leikmannahópnum hjá Al Arabi í Katar. Heimir segir frá því í viðtali í Miðjunni á Fótbolta.net að tólf leikmenn séu farnir frá liðinu en að einhverjir þeirra hafi verið lánaðir. Heimir tók við Al Arabi í desember og liðið tapaði 4-0 í fyrsta leiknum undir hans stjórn. Næsti leikur Al Arabi er á móti Al Gharafa á morgun en það verður fyrsti heimaleikurinn síðan að Heimir tók við. Al Gharafa er í sjötta sæti deildarinnar, þremur stigum og einu sæti á eftir Al Arabi. „Við vissum að það þyrfti að breyta hópnum. Við erum með ákveðna hugmyndafræði sem er ein af ástæðunum fyrir því að við vorum ráðnir hingað,“ sagði Heimir í viðtalinu í Miðjunni en Eyjamaðurinn vill losna við brasilísu og spænsku áhrifin og vera öðruvísi lið með öðruvísi nálgun á fótboltann. Þetta er fyrsta starf Heimis síðan að hann hætti með íslenska landsliðið eftir HM í Rússlandi síðasta sumar. Heimir var þá búinn að vera aðstoðar- eða aðallandsliðsþjálfari Íslands frá því í árslok 2011. Nú stýrir Heimir hinsvegar félagsliði í fyrsta sinn síðan að hann var með Eyjamenn í Pepsi-deildini sumarið 2011. „Það voru leikmenn í hópnum sem voru ekki með það hugarfar og vinnusemi sem við viljum að leikmenn hafi. Við höfum þurft að taka til. Það hefur verið skúrað út og það er smá hvellur í augnablikinu en við mátum það þannig að það er betra að gera hlutina strax og vinna út frá því heldur en að vera smá saman að breyta hlutunum,“ sagði Heimir sem er með Bjarka Má Ólafsson sér til aðstoðar.
Fótbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM Sjá meira