Töframaðurinn Potter tekinn við Brighton Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. maí 2019 15:50 Graham Potter er mættur í ensku úrvalsdeildina. vísir/getty
Brighton & Hove Albion gerði í dag Graham Potter að nýjum knattspyrnustjóra félagsins og gerði við hann fjögurra ára samning en Potter tekur við starfinu af Chris Hougton sem var tekinn eftir tímabilið. Potter er 44 ára gamall og kemur til Brighton, sem hélt sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni, frá Swansea í B-deildinni þar sem hann var í eina leiktíð eftir komu sína frá Östersund í Svíþjóð. Englendingurinn vakti gríðarlega athygli hjá Östersund þar sem að hann fékk tækifærið árið 2010 en það var fyrsta þjálfarastarfið hans á ferlinum. Hann tók við smáliðinu Österstund í C-deildinni og féll niður í D-deildina á fyrsta ári en eftir það hófst ævintýraleg upprisa. The club are delighted to announce the appointment of Graham Potter as the new head coach of the football club. Breaking news brought to you by @eToro #BHAFC pic.twitter.com/rfRdm94Czn— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) May 20, 2019 Potter stýrði Östersund upp úr D-deildinni í úrvalsdeildina í Svíþjóð á fimm árum og kom liðinu alla leið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar tímabilið 2017/2018. Þar var Östersund í riðli með Athletic Bilbao, Herthu Berlín og Zorya Luhansk frá Úkraínu og komst upp úr riðlinu. Potter vakti ekki minni athygli þegar að Österstund vann útileikinn á Emirates-vellinum gegn Arsenal í 32 liða úrslitunum, 2-1, en liðið tapaði heimaleiknum 3-0 og ævintýrið á enda. Eðlilega fóru enskir fjölmiðlar að leika sér með nafnið hans og var hann kallaður Töframaðurinn Potter með tilvísun í sjálfan Harry Potter. Potter þykir einn mest spennandi fótboltaþjálfari heims en hann er mjög taktískur og sóknarþenkjandi en Östersund-liðið hans spilaði skemmtilegan fótbolta. Nú fær hann tækifæri í bestu deild heims.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira