Slydda og rigning með nýrri lægð Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. mars 2019 07:59 Það verður blautt á Suður- og Vesturlandi í dag. Vísir/vilhelm
Dálítil lægð er á hreyfingu austnorðaustur úr Grænlandshafi en úrkomusvæði lægðarinar fer inn á Suður- og Vesturland í dag. Þá hvessir úr austri og suðaustri með slyddu eða rigningu, en snjókomu til fjalla, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá verður hægara veður og lengst af þurrt fyrir norðan og austan. Áfram er gert ráð fyrir austlægri átt á morgun og hinn daginn og dálítilli úrkomu í flestum landshlutum. Frostlaust verður víða um land að deginum en sums staðar vægt frost inn til landsins. Í ábendingu veðurfræðings á vef Vegagerðarinnar er þeim, sem eiga leið um Hellisheiði eða Þrengsli, bent á að um tíma í dag eða frá um kl. 13 og til 17 gerir hríðarveður ofan um 200 m. 14-17 m/s og lítið skyggni um tíma. Veður verður skárra á Mosfellsheiði og gengur niður undir kvöld.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:Í dag: Hægt vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s og slydda eða rigning eftir hádegi, hvassast á Kjalarnesi. Lægir heldur í kvöld og smá skúrir. Suðaustan 5-10 og dálítil rigning um tíma á morgun. Hiti kringum frostmark Á fimmtudag:Suðaustlæg átt, 8-15 m/s, hvassast á annesjum. Dálítil slydda eða snjókoma á V-landi, rigning með köflum með S-ströndinni, en annars úrkomulítið. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost NA-til. Á föstudag:Austlægar áttir, 8-15 m/s, hvassast syðst. Skýjað að mestu, slydda eða rigning með köflum S- og V-lands, en dálítil él við sjóinn NA-lands. Hiti víða 0 til 4 stig, en vægt frost inn til landsins. Á laugardag:Austlæg átt og slydda eða snjókoma S-lands og él austast. Lægir og rofar til um kvöldið. Kólnandi veður í bili. Á sunnudag:Suðvestlæg átt og slydda eða rigning, en úrkomulaust að mestu eystra. Hiti nærri frostmarki. Á mánudag:Vaxandi sunnanátt með rigningu og hlýnandi veðri, en lengst af þurrt fyrir norðan. Á þriðjudag:Lítur út fyrir hvassa suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum, en þurrviðri NA-lands og kólnar aftur.
Veður Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Sjá meira