Svíþjóð skellti Þýskalandi og mætir Hollandi í undanúrslitunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Svíarnir fagna sigurmarkinu.
Svíarnir fagna sigurmarkinu. vísir/afp
Svíþjóð er komið í undanúrslitin á HM kvenna í Frakklandi í ár eftir 2-1 sigur á Þjóðverjum í Rennes í dag.

Þýskaland komst yfir á sextándu mínútu. Eftir hárfína sendingu frá Sara Daebritz, koma Lina Magull í netið og þær þýsku komnir yfir.

Forystan dugði einungis í sex mínútur. Langur bolti frá Linda Sembrant, fór yfir alla varnarmenn Þýskalands og Sofia Jakobsson slapp ein inn fyrir. Henni brást ekki bogalistin og jafnaði metin.







Staðan var 1-1 í hálfleik en á þriðju mínútu síðari hálfleiks kom sigurmarkið. Stina Blackstenius kom þá boltanum yfir lína eftir darraðadans í teig Þjóðverja.







Sjö mínútum fyrir leikslok virtist Þýskaland vera jafna metin en Alexandra Popp stangaði þá boltann í netið. Hún var hins vegar dæmd rangstæð eftir VAR skoðun og í endursýningu sást að um millimetra var að ræða.

Svíarnir héldu út og eru komnir í undanúrslitin á HM. Í undanúrslitunum mæta þær Hollandi en í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast England og Bandaríkin.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira