Framkvæmdarstjóri Dortmund reyndi að lokka Klopp aftur til félagsins sumarið 2018 Anton Ingi Leifsson skrifar 10. október 2019 13:00 Jurgen Klopp. vísir/getty
Hans-Joachim Watzke, framkvæmdastjóri Dortmund, segir að hann hafi reynt að lokka Jürgen Klopp aftur til félagsins sumarið 2018. Klopp vann þýsku úrvalsdeildina í tvígang á sjö ára tíma þjálfaraferli sínum hjá félaginu og kom Dortmund aftur í fremstu röð í Evrópuboltanum. Hann yfirgaf svo Dortmund árið 2015 og nokkrum mánuðum síðar var hann ráðinn stjóri Liverpool þar sem hann hefur gert frábæra hluti. Þrátt fyrir að Watzke hafi reynt að fá Klopp til félagsins segir hann að það hafi ekki komið honum á óvart að Klopp hafi viljað vera lengur hjá Liverpool. „Ég vissi að Jürgen myndi neita og klára samninginn sinn hjá Liverpool. Hann hefur alltaf klárað sína samninga en ég varð að spyrja hann,“ sagði Watzke í nýrri bók sinni.Hans-Joachim Watzke, CEO of Dortmund, has told Bild that he attempted to bring Jurgen Klopp back to Dortmund in May 2018. — DaveOCKOP (@DaveOCKOP) October 9, 2019 „Ég bjóst ekki við því að hann myndi segja já en ég hefði ekki fyrirgefið sjálfum mér ef ég hefði ekki lagt fram þessa fyrirspurn.“ Bókin fjallar um tíma Watzke hjá Dortmund og hann hrósar Klopp mikið. „Það mikilvægasta í sambandi okkar var að við gátum treyst hvorum öðrum. Jürgen laug aldrei að mér. Hann var hreinskilinn og ég sagði honum aldrei ósatt.“ Klopp er nú með Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, átta stigum á undan Englandsmeisturunum í Manchester City, eftir átta umferðir.
Enski boltinn Mest lesið Lebron talaði hreint út Körfubolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Elvar með sex mörk í toppslagnum Handbolti Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira