Hetja Ajax var ekki fædd þegar liðið komst síðast í undanúrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. apríl 2019 13:30 De Ligt fagnar marki sínu gegn Juventus í gær. vísir/getty
Matthjis De Ligt, sem skoraði sigurmark Ajax gegn Juventus í gær, var ekki fæddur þegar Ajax komst síðast í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.Ajax tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar með fræknum útisigri, 1-2, á Juventus í gær. De Ligt skoraði sigurmarkið um miðbik seinni hálfleiks. Hann skallaði þá hornspyrnu Lasse Schöne í netið. Þetta er í fyrsta sinn sem Ajax kemst í undanúrslit Meistaradeildarinnar frá 1997. Þá voru enn tvö ár þar til De Ligt fæddist. Hann kom í heiminn 12. ágúst 1999 og er því aðeins 19 ára. Þrátt fyrir það er hann fyrirliði Ajax og búinn að leika 15 A-landsleiki fyrir Holland. Hinn markaskorari Ajax í leiknum gegn Juventus, Donny van de Beek, fæddist á milli leikja Ajax gegn Juventus í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í apríl 1997. Juventus vann einvígið, 6-2 samanlagt. Ajax varð Evrópumeistari 1995 og tapaði úrslitaleiknum fyrir Juventus ári síðar. Liðið komst í undanúrslit 1997 en þá var farið að kvarnast úr Evrópumeistaraliðinu og leikmenn á borð við Edgar Davids, Patrick Kluivert og Clarence Seedorf horfnir á braut. Eftir tímabilið 1996-97 hætti Louis van Gaal með Ajax og tók við Barcelona. Fastlega er búist við því að stærstu lið Evrópu tíni helstu skrautfjaðrirnar af Ajax í sumar. Frenkie De Jong er þegar búinn að semja við Barcelona og allar líkur eru á því að De Ligt sé einnig á förum. Í undanúrslitum Meistaradeildarinnar mætir Ajax annað hvort Manchester City eða Tottenham.
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Öskubuskuævintýri Ajax heldur áfram Ótrúlegt lið Ajax heldur áfram að koma öllum á óvart í Meistaradeildinni. 16. apríl 2019 20:45 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira
Öskubuskuævintýri Ajax heldur áfram Ótrúlegt lið Ajax heldur áfram að koma öllum á óvart í Meistaradeildinni. 16. apríl 2019 20:45