Tvö sett af bræðrum sem spila með tveimur félagsliðum og fjórum landsliðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2019 18:15 Jérome og Kevin-Prince Boateng í sjónvarpsviðtali eftir einn af innbyrðisleikjum sínum á ferlinum. Þeir hafa mæst bæði með félagsliðum og landsliðum. Getty/Sascha Steinbach
Með stórliðum Barcelona og Bayern München spila nú bræður sem eru allir í mjög sérstakri stöðu því þeir spila ekki fyrir sama landsliðið. Þetta varð ljóst eftir að Barcelona samdi við Kevin-Prince Boateng og fékk hann á láni frá ítalska félaginu Sassuolo. Kevin-Prince Boateng er 31 árs gamall og eldri bróðir Jérome Boateng sem spilar með Bayern München í Þýskalandi. Jérome er þrítugur. Með Bayern München spilar einmitt líka Thiago Alcantara sem er 27 ára gamall og er eldri bróðir Rafinha sem spilar með Barcelona. Rafinha er 25 ára gamall. Þessir fjórir spila síðan með fjórum mismunandi landsliðum og það er þá sem málið fer fyrst að flækjast. ESPN vakti athygli á þessu.Incredible! pic.twitter.com/ijDp21eLwN — ESPN FC (@ESPNFC) January 26, 2019Thiago Alcantara er spænskur landsliðsmaður og hefur spilað 31 A-landsleik fyrir Spán frá árinu 2011. Yngri bróðir hans Rafinha spilar aftur á móti með brasilíska landsliðinu þar sem hann er með 1 mark í 2 landsleikjum. Faðir þeirra er Mazinho, sem varð heimsmeistari með Brasilíu á HM í Bandaríkjunum árið 1994. Jérome Boateng er þýskur landsliðsmaður og hefur hann spilað 76 A-landsleiki fyrir Þýskaland frá árinu 2009. Eldri bróðir hans, Kevin-Prince Boateng, er aftur á móti landsliðsmaður Gana og hefur spilað 15 A-landsleiki fyrir Gana. Þeir Jérome og Kevin-Prince eru reyndar hálfbræður þótt að það sé aðeins eitt ár á milli þeirra. Mæður þeirra beggja eru samt þýskar en faðir þeirra er Ganverji.
Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira