Sumarmessan: Myndi ekki vilja sjá mitt lið mæta svona til leiks á HM Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. júní 2018 06:00 Íslensku strákarnir glæsilegir við komuna til Rússlands. Svona á að mæta til leiks. vísir/vilhelm
HM í fótbolta er hafið. Fótboltaveisla á hverjum degi, margir klukkutímar af mönnum í knattleik fylla skjái landans. Ekki er það allra tebolli að rýna í knattspyrnuhæfni landa heimsins en það er eitt sem nær allir hafa skoðun á; Búningar og klæðnaður landsliðanna. Strákarnir í Sumarmessunni, sem var frumsýnd á Stöð 2 Sport í fyrrakvöld, ákváðu að taka aðeins hlé frá fótboltaumræðu og fóru yfir best og verst klæddu landsliðin. Þeir fóru þó ekki yfir búningana sjálfa, enda eru þeir búnir að fá mikla umræðu síðustu mánuði, heldur klæðnaðinn sem liðin voru í við komuna til Rússlands. Í flokknum yfir best klæddu liðin voru Danir, Egyptar, félagar okkar úr D-riðli Nígeríumenn, Þjóðverjar og að sjálfsögðu strákarnir okkar í sérsaumuðu jakkafötunum frá Herragarðinum. Sérfræðingarnir voru þó ekki alveg sammála stjórnandanum Benedikt Valssyni og fannst hvorki Danir né Nígeríumenn eiga heima í þessum hópi. „Ég myndi ekki vilja sjá mitt lið mæta svona til leiks á heimsmeistaramót, ég verð að viðurkenna það,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson meðal annars um Danina. Verst klæddu liðin voru Mexíkó, Panama, Sádi-Arabar, Senegal, Frakkar, Argentína, Grikkland, Sviss. Þar fengu þau lið sem mættu í æfingagöllum algjöra falleinkun. Þó voru Danir í æfingagöllum en komust samt á best klædda listan hjá Benna. Þessa fatadýrð má sjá í sjónvarpsglugganum í fréttinni og misræmi smekks sérfræðinganna í settinu.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Sport Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Sport Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Enski boltinn ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Sjá meira