Carrick: Mourinho á hrós skilið fyrir að halda í hefðir United Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. október 2018 09:30 Carrick er kominn í þjálfarateymi United vísir/getty
Michael Carrick segir Jose Mourinho eiga hrós skilið fyrir að halda uppi hefðum Manchester United og gefa ungum leikmönnum úr akademíu félagsins tækifæri. Í gegnum sögu félagsins hefur það verið hefðin hjá United að leyfa ungum leikmönnum að spila. Hinn frægi '92 árgangur og svokallaðir „Busby babes“ eru dæmi um lið seð náðu frábærum árangri og voru að mestu byggð í kringum uppalda leikmenn. Þegar Mourinho kom til félagsins héldu margir að sú hefð færi fljúgandi því Portúgalinn er með orðspor á sér fyrir að treysta á reynslu og að kaupa inn nýja leikmenn frekar en að leyfa ungum leikmönnum að spreyta sig. Hann hefur hins vegar hleypt nokkrum ungum leikmönnum inn í liðið á borð við Marcus Rashford, Jesse Lingard og Scott McTominay. „Hann skilur sögu félagsins,“ sagði Michael Carrick við Sky Sports. Carrick var í 12 ár hjá United og spilaði 316 leiki fyrir félagið. „Hann á skilið mikið hrós fyrir að spila Rashford og McTominay á síðasta tímabili. Þeir fengu meira að segja nokkra stóra leiki.“ „Það er áskorun fyrir félagið að halda þessu áfram. Við fáum ekki lengur tíu, tuttugu unga leikmenn upp, kannski bara fimm, sex, en það þarf að halda áfram að gefa þeim tækifærin.“ Það hefur verið nokkur umræða í Englandi um hversu lítið af tækifærum ungir enskir leikmenn fá í úrvalsdeildinni. Manchester United stillir hins vegar alltaf upp liði á leikdegi sem inniheldur að minnsta kosti einn leikmann úr akademíu félagsins, síðast þegar enginn uppaldur var í liðinu var árið 1937. „Þegar allt kemur til alls þá eru akademíurnar til þess að framleiða leikmenn og koma þeim í aðalliðið. Það má ekki hunsa söguna og hefðina, sérstaklega ekki hjá United.“
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Fleiri fréttir Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Sjá meira