Carrick hætti næstum því í fótbolta vegna þunglyndis Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. október 2018 09:00 Michael Carrick spilar sinn síðasta leik fyrir Man. Utd í dag. vísir/getty
Michael Carrick, fyrrverandi miðjumaður Manchester United, hefur verið að opna sig um geðræn vandamál sín að undanförnu en hann glímdi við þunglyndi sem fékk hann næstum því til að hætta í fótbolta. Í ævisögu sinni greinir hann frá því að eftir tapið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2009 á móti Barcelona hafi hann verið á slæmum stað og eftir leikinn glímdi hann um árabil við þunglyndi. Carrick kvaldist í hljóði og lét ekki einu sinni fjölskyldu sína vita af erfiðleikunum. Þetta varð svo erfitt að hann óskaði eftir því að fá að fara heim af HM 2010 í Suður-Afríku. „Ég var eiginlega kominn með nóg af fótbolta,“ segir Carrick í viðtali við Sky Sports en hann starfar í dag sem þjálfari hjá Manchester United. „Það hljómar brjálæðislega að segja þetta en svona leið mér. Þetta varð alltaf verra og verra og ég var alltaf erfiðari við sjálfan mig því mér fannst ég vera að fá allt sem ég vildi.“ „Ég var að spila fyrir frábært félag, var í enska landsliðinu, átti eiginkonu og tvö falleg börn. Ég gat ekki beðið um neitt meira,“ segir Michael Carrick.
Enski boltinn Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira