Heynckes myndi aldrei semja við Aubameyang eða Dembele Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. janúar 2018 17:45 Aubameyang og Dembele léku saman hjá Dortmund vísir/getty
Knattspyrnustjóri Bayern Munich, hinn 72 ára Jupp Heynckes, sagði að hann myndi aldrei vilja ráða leikmenn eins og Ousmane Dembele og Pierre-Emerick Aubameyang eftir að hafa horft upp á hegðun þeirra gagnvart Dortmund. Dembele var seldur til Barcelona í sumar, en áður en salan gekk í gegn ákvað Dembele að fara í verkfall og sleppa því að mæta á æfingu. Hann var þá settur í agabann af félaginu. Aubameyang hefur verið sterklega orðaður við Arsenal á síðustu dögum, ekki síst eftir að Arsene Wenger fór fögrum orðum um hann á blaðamannafundi í gær. Hann hefur ekki mætt á síðustu tvo liðsfundi Dortmund. „Það er óásættanlegt hvernig sumir leikmenn hegða sér. Svona stöður hafa alltaf komið upp, en nú hafa þær náð nýjum hæðum,“ sagði Heynckes. „Ég er mjög gagnrýnin á svona hegðun því leikmennirnir halda að þeir séu með einhver forréttindi. Mál Philippe Coutinho var svipað, en var leyst á mun fágaðari hátt.“ „Félög ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þau semja við svona leikmenn. Í sannleika sagt þá myndi ég aldrei gera það. Það verður að sýna leikmönnunum að þetta er ekki í boði,“ sagði Jupp Heynckes.
Fótbolti Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Sjá meira