„Sé litið til skáldverka þá eru Arnaldur og Yrsa áfram á toppnum og Ragnar Jónasson í fimmta sæti, staðan sem sagt óbreytt. Ungfrú Ísland eftir Auði Övu hækkar sig um tvö sæti og er nú í 8. sæti listans og Sextíu kílóin hans Hallgríms Helgasonar hækkar einnig um tvö sæti og er komin upp í 13. sæti. Hástökkvari skáldverka á aðallistanum þessa vikuna er hins vegar Stefán Máni, bók hans, Krýsuvík hækkar sig um heil 5 sæti og er nú komin í 15. sæti aðallistans,“ segir Bryndís en listarnir taka til bóksölu vikunna 28. nóvember til 4. desember.
„Sé litið á ævisögur þá er Ásdís Halla að endurtaka sigurgöngu sína frá síðasta ári, bókin hennar, Hornauga, er nú orðin 10. mest selda bók ársins. Óvænti smellurinn í þessum flokki er hins vegar Aron Einar Gunnarsson. Bókin hans, Aron – sagan mín, fer upp um þrjú sæti og situr nú í 11. sæti listans.“
Ef litið er til annarra óvæntra á lista þá má líta til barnabókanna og þar er Bjarni Fritzson að gera gott mót með Orra óstöðvandi, sem situr í þriðja sæti skáldverkalista barna. Tveir aðrir nýliðar eru einnig áberandi á færði- og handbókalista barna.
„Það er þá fyrst að nefna Steinda jr. eða Steinþór Hróar Steinþórsson sem sent hefur frá sér sína fyrstu bók, Steindi í orlofi, sem er mest selda bókin í þessum flokki í vikunni. Hann skákar þar með sjálfum Vísinda-Villa sem verður að láta sér annað sætið duga þessa vikuna. Í þriðja sæti er svo Gummi Ben, Guðmundur Benediktsson, með Stóru fótboltabókina sína. Það verður pottþétt hörð samkeppni milli þessara þriggja höfunda um lokaniðurstöður ársins.“
Topplistinn - söluhæstu titlarnir
1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
2. Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
3. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
4. Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
5. Þorpið - Ragnar Jónasson
6. Siggi sítróna - Gunnar Helgason
7. Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir
8. Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir
9. Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson
10. Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson
11. Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl
12. Jólalögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
13. Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
14. Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin
15. Krýsuvík - Stefán Máni
16. Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir
17. Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal
18. Fallegu lögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
19. Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
20. Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal
Íslensk skáldverk
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
- Þorpið - Ragnar Jónasson
- Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir
- Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
- Krýsuvík - Stefán Máni
- Lifandilífslækur - Bergsveinn Birgisson
- Stormfuglar - Einar Kárason
- Svik - Lilja Sigurðardóttir
- Ástin, Texas - Guðrún Eva Mínervudóttir
Þýdd skáldverk
- Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan
- Alein - Mary Higgins Clark
- Dag einn í desember - Joise Silver
- Lífið heldur áfram - Winne Li
- Afhjúpun Ólivers - Liz Nugent
- Sagnaseiður - Sally Magnusson
- Saga tveggja borga - Charles Dickens
- Galdra-Manga - Tapio Koivukari
- Mín sök- Clare Machintosh
- Þrír dagar og eitt líf - Pierre Lemaitre
Ljóð
- Sálumessa - Gerður Kristný
- Haustaugu - Hannes Pétursson
- Smáa letrið - Linda Vilhjálmsdóttir
- Hryggdýr - Sigurbjörg Þrastardóttir
- Hjarta landsins - Ómar Ragnarsson
- Fiðrildi í rökkrinu - Magnús Skúlason
- Vammfirring - Þórarinn Eldjárn
- Rof - Bubbi Morthens
- Ljóð muna ferð - Sigurður Pálsson
- Ellefti snertur af yfirsýn - Ísak Harðarson
Barnabækur - skáldverk
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason
- Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson
- Jólalögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin
- Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal
- Fallegu lögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Leitið og finnið - Gunnar Kr. Sigurjónsson
- Jól með Láru - Birgitta Haukdal
Barna- og ungmennafræði- og handbækur
- Steindi í orlofi - Steinþór Hróar Steinþórsson
- Vísindabók Villa - Truflaðar tilraunir - Vilhelm Anton Jónsson
- Stóra fótboltabókin með Gumma Ben - Guðmundur Benediktsson
- Jólaföndur – Bókafélagið
- 13 þrautir jólasveinanna: Óþekktarormar - Huginn Þór Grétarsson
- Brandarar og gátur 3 - Huginn Þór Grétarsson
- Fótboltaspurningar 2018 - Bjarni Þór Guðjónsson
- Norrænu goðin - Johan Egerkranz
- Settu saman allan heiminn - Leon Gray
- Slím - Ísabella Sól Huginsdóttir
Ungmennabækur
- Ljónið - Hildur Knútsdóttir
- Rotturnar - Ragnheiður Eyjólfsdóttir
- Pax- Níðstöngin - Åsa Larsson & Ingela Korsell
- Hyldýpið - Camilla Sten & Viveca Sten
- Skjaldbökur alla leiðina niður - John Green
- Bækur duftsins - Villimærin fagra - Philip Pullman
- Hvísl hrafnanna 2 - Malene Sølvsten
- Vítisvélar - Philip Reeve
- Hefnd - Kári Valtýsson
- Sölvasaga Daníelssonar - Arnar Már Arngrímsson
Fræði og almennt efni
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
- Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson
- Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir
- Hvað er í matinn? - Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
- Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsdóttir
- Prjónað af ást - Lene Holme Samsöe
- Ekki misskilja mig vitlaust! - Guðjón Ingi Eiríksson
- Stóra Disney uppskriftabókin - Vinsælustu uppskriftirnar - Ýmsir
- Reykjanesskagi - Náttúra og undur - Ellert Grétarsson
- Hvítabirnir á Íslandi - Rósa Rut Þórisdóttir
Ævisögur
- Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir
- Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl
- Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal
- Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
- Hasim - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
- PQ-17 skipalestin - Kolbrún Albertsdóttir
- Níu líf Gísla Steingrímssonar - Sigmundur Ernir Rúnarsson
- Nú brosir nóttin - æviminningar Guðmundar Einarssonar - Theódór Gunnlaugsson
- Ærumissir - Davíð Logi Sigurðsson
- Jón Gunnarsson - Ævisaga - Jakob F. Ásgeirsson
Uppsafnað frá áramótum - söluhæstu bækurnar frá 1. janúar 2018
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
- Þorsti - Jo Nesbø
- Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
- Ofurhetjuvíddin - Ævar Þór Benediktsson
- Þorpið - Ragnar Jónasson
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
- Hornauga – Ásdís Halla Bragadóttir