Menning

Birgitta styrkir stöðu sína á bóksölulistanum

Jakob Bjarnar skrifar
Bryndís Loftsdóttir segir ljóst að mikil umræða sem varð um bók Birgittu Haukdal í síðustu viku hafi ekki komið niður á sölu bóka hennar, nema síður sé.
Bryndís Loftsdóttir segir ljóst að mikil umræða sem varð um bók Birgittu Haukdal í síðustu viku hafi ekki komið niður á sölu bóka hennar, nema síður sé. visir/birgitta
Nýr bóksölulisti liggur fyrir, sá 2. í röðinni fyrir þessi jólin. Þau Arnaldur og Yrsa sitja áfram á toppi Bóksölulista vikunnar. En það sem vekur sérstaka athygli er að Birgitta Haukdal styrkir stöðu sína á sölulistum.

„Bókin sem alls óvænt hefur stolið athyglinni á liðnum dögum, Lára fer til læknis eftir Birgittu Haukdal, hefur tekið góðan kipp, fer nú úr 19. sæti aðallistans upp í 11. sæti og situr jafnframt í 4. sæti barnabókalistans. Það er því ekki hægt að segja að umræðan hafi neikvæð áhrif á söluna,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút. Hún hjálpar Vísi að rýní í listana og benda á það sem markvert má heita.

Á toppi barnabókalistans trónir Ævar Þór Benediktsson  með Þitt eigið tímaferðalag en sér við hlið í 2. sæti listans er Gunnar Helgason með Sigga sítrónu en þeir Ævar og Gunnar hafa leitt barnabókalistann á undanförnum árum og skipst á að verma toppsætið. Á þeim lista er Birgitta hins vegar með þrjár bækur.

Glæpasagnahöfundarnir halda sínu og má nú tala um þríeyki á bóksölulistanum. Arnaldur, Yrsa og Ragnar.
Það sem hins vegar liggur fyrir er að glæpasögurnar halda sínu. Arnaldur getur jafnframt státað að því að vera kominn í fyrsta sæti uppsafnaða listans sem þýðir að bókin hans, Stúlkan hjá brúnni, er orðin söluhæsta bók ársins eftir innan við mánuði í sölu, að sögn Bryndísar. Og Brúðan, bók Yrsu, sem kom nokkru eftir bók Arnaldar, er einnig komin inn á listann yfir mest seldu bækur ársins og situr þar í fjórða sæti þessa vikuna.

Glæpasagnaprinsinn styrkir stöðu sína

„Ragnar Jónasson er heldur betur búinn að stimpla sig inn sem þriðja stoðin í íslenska glæpasagnagenginu. Þorpið hans er í þriðja sæti skáldverkalistans, á eftir Arnaldi og Yrsu sem þýðir að við erum með glæpasögur í þremur efstu sætum listans.“

Undanfarin ár höfum við mátt horfa á þau Arnald og Yrsu kljást á toppi lista, réttnefnd glæpasagnakonungur og drottning, en svo þeirri líkingu sé haldið til streitu er nú glæpasagnaprins kominn til skjalanna og er til alls líklegur.

Óttar Sveinsson afhendir skipverjanum Guðmundi Arasyni eintök af nýjustu Útkallsbókinni, Þrekvirki í djúpinu, í Hveragerði á föstudag.Fréttablaðið/Ernir
Líkt og síðast eru svo næst á lista rithöfundarnir Auður Ava Ólafsdóttir með Ungfrú Ísland og Hallgrímur Helgason með Sextíu kíló af sólskini. Bryndís segir langt síðan hellst hafa yfir okkur jafn sterk skáldsagnajól og alveg öruggt að mörg þeirra verka sem nú líta dagsins ljós eiga eftir að birtast í ótal þýðingum um allan heim á næstu árum.

Óttar er hástökkvarinn

„Hástökkvari vikunnar er Útkall – Þrekvirki í djúpinu eftir Óttar Sveinsson.  Ég held að ég fari rétt með, að þetta sé 25. útkallsbókin, sú fyrsta kom út árið 1994 og nefndist Útkall Alfa TF-Sif. Allar hafa bækur Óttars ratað á metsölulista fyrir jól og hann því sannkrýndur metsöluhöfundur,“ segir Bryndís og vitnar í fréttatilkynningu um fyrstu bókina.

„Þar kemur fram að hún hafi kostað 2.980 krónur þegar hún kom út eða sem svarar ríflega 8.000 krónur miðað við uppreiknað verðlag.  Nýju bókina má hins vegar fá á undir 6.000 kr. sem sýnir glöggt að bækur hafa ekki haldið í við verðlag og í raun lækkað nokkuð á liðnum áratugum.“

Þá er vert að benda á það að Þórður Snær má heldur betur vel við una. Blaðamannsbók, eða non fiction-bók hans Kaupthinking er í 8. sæti aðallistans og líkast til er það með því allra besta sem sést hefur í sölu bóka af því tagi.



Ævisögurnar sterkar í ár

Þá liggur fyrir að Ásdís Halla mun gera gott mót og jafnvel svo að hún nái að velgja glæpasagnahöfundum undir uggum.

„Ásdís Halla hendist áfram upp listann, hún var í 11. sæti í síðustu viku en er nú í fjórða sæti aðallistans og aftur á toppi ævisagnalistans.  Þar á hún einnig, aðra vikuna í röð, bókina í 10. sæti, Tvísögu, sem kom út í fyrra.“

Aron Einar Gunnarsson fótboltakappi. Enginn byrjendabragur er á honum í bókaútgáfunni.vísir/vilhelm
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði telst til nýliða í jólabókaflóðinu en það er aldeilis enginn byrjendabragur á honum, Aron – sagan mín fer beinustu leið í 2. sæti ævisagnalistans.

Henny Hermanns stekkur einnig beint í þriðja sæti ævisagnalistans, Margrét Blöndal skráir sögu hennar en hún var einmitt höfundur ævisögu Ellyjar Vilhjálmsdóttur sem kom út árið 2012 og var endurútgefin í kilju árið 2017 í tengslum við uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á Elly.  Kannski Henny verði næst á svið?                 

        

Topplistinn - söluhæstu titlar Bóksölulistans dagana 21.-27. nóvember                          

  1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason   
  2. Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir     
  3. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson       
  4. Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir    
  5. Þorpið - Ragnar Jónasson     
  6. Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson      
  7. Siggi sítróna - Gunnar Helgason       
  8. Kaupthinking - Þórður Snær Júlíusson       
  9. Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin       
  10. Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir      
  11. Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal     
  12. Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson     
  13. Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir    
  14. Aron - sagan mí  - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl
  15. Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason        
  16. Afmæli hjá Láru     - Birgitta Haukdal      
  17. Jólaföndur – Unga ástin mín                     
  18. Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  19. Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal     
  20. Krýsuvík - Stefán Máni       
                                 

Íslensk skáldverk                                              

  1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason        
  2. Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir     
  3. Þorpið - Ragnar Jónasson     
  4. Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir      
  5. Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason        
  6. Krýsuvík - Stefán Máni       
  7. Lifandilífslækur - Bergsveinn Birgisson    
  8. Svik - Lilja Sigurðardóttir      
  9. Stormfuglar - Einar Kárason      
  10. Ástin, Texas - Guðrún Eva Mínervudóttir    
                                 

Þýdd skáldverk                                                      

  1. Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan  
  2. Dag einn í desember - Joise Silver    
  3. Galdra-Manga - Tapio Koivukari        
  4. Afhjúpun Ólivers - Liz Nugent    
  5. Saga tveggja borga - Charles Dickens       
  6. Etýður í snjó - Yoko Tawada      
  7. Lífið heldur áfram - Winne Li         
  8. Sænsk gúmmístígvél - Henning Mankell       
  9. Becombergageðsjúkrahúsið - Sara Stridsberg      
  10. Litla bakaríið við Strandgötu - Jenny Colgan    
                                 

Ljóð                                                 

  1. Vammfirring - Þórarinn Eldjárn        
  2. Haustaugu - Hannes Pétursson     
  3. Hryggdýr - Sigurbjörg Þrastardóttir        
  4. Hjarta landsins - Ómar Ragnarsson     
  5. Vetrarland - Valdimar Tómasson        
  6. Skuggaveiði - Sindri Freysson    
  7. Sálumessa - Gerður Kristný       
  8. Smáa letrið - Linda Vilhjálmsdóttir        
  9. Að ljóði muntu verða - Steinunn Sigurðardóttir       
  10. Rof - Bubbi Morthens         
                                 

Barnabækur - skáldverk                                              

  1. Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson      
  2. Siggi sítróna - Gunnar Helgason       
  3. Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin       
  4. Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal     
  5. Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson     
  6. Afmæli hjá Láru - Birgitta Haukdal    
  7. Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  8. Jól með Láru - Birgitta Haukdal       
  9. Miðnæturgengið - David Walliams       
  10. Jólalögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson     
                                 

Barna- og ungmennafræði- og handbækur                               

  1. Jólaföndur - Unga ástin mín      
  2. 13 þrautir jólasveinanna: Óþekktarormar - Huginn Þór Grétarsson    
  3. Fótboltaspurningar 2018 - Bjarni Þór Guðjónsson      
  4. Spurningabókin 2018 - Guðjón Ingi Eiríksson     
  5. Settu saman allan heiminn - Leon Gray      
  6. Stóra fótboltabókin með Gumma Ben - Guðmundur Benediktsson
  7. Steindi í orlofi - Steinþór Hróar Steinþórsson       
  8. Mandala- töfrandi táknmyndir - Setberg               
  9. Brandarar og gátur 3 - Huginn Þór Grétarsson    
  10. Gátur og meiri gátur - Eggert Ísólfsson    
                                 

Ungmennabækur                                             

  1. Ljónið - Hildur Knútsdóttir      
  2. Hyldýpið - Camilla Sten & Viveca Sten      
  3. Sölvasaga Daníelssonar - Arnar Már Arngrímsson       
  4. Pax- Níðstöngin - Åsa Larsson & Ingela Korsell       
  5. Rotturnar - Ragnheiður Eyjólfsdóttir       
  6. Vítisvélar - Philip Reeve        
  7. Bækur duftsins - Villimærin fagra - Philip Pullman   
  8. Hvísl hrafnanna 2 - Malene Sølvsten        
  9. Ætíðarþjófurinn     - Clive Barker     
  10. Hvísl hrafnanna 1 - Malene Sølvsten        
                                 

Fræði og almennt efni                                               

  1. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson       
  2. Kaupthinking - Þórður Snær Júlíusson       
  3. Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir    
  4. Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsdóttir        
  5. Hvað er í matinn? - Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir      
  6. Prjónað af ást - Lene Holme Samsöe    
  7. Ekki misskilja mig vitlaust! - Guðjón Ingi Eiríksson 
  8. Hjarta Íslands - Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson
  9. Hvítabirnir á Íslandi - Rósa Rut Þórisdóttir    
  10. Laggó! : Gamansögur af íslenskum sjómönnum - Guðjón Ingi Eiríksson
                                 

Ævisögur                                                  

  1. Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir    
  2. Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl
  3. Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal     
  4. Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir     
  5. Hasim - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir    
  6. Níu líf Gísla Steingrímssonar - Sigmundur Ernir Rúnarsson
  7. PQ-17 skipalestin - Kolbrún Albertsdóttir       
  8. Nú brosir nóttin - æviminningar Guðmundar Einarssonar     - Theódór Gunnlaugsson       
  9. Ærumissir - Davíð Logi Sigurðsson     
  10. Tvísaga - Ásdís Halla Bragadóttir     
                                 

Uppsafnað frá áramótum - söluhæstu bækurnar frá 1. janúar 2018                    

  1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason        
  2. Þorsti - Jo Nesbø       
  3. Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan
  4. Brúðan    - Yrsa Sigurðardóttir        
  5. Ofurhetjuvíddin     - Ævar Þór Benediktsson      
  6. Marrið í stiganum - Eva Björg Ægisdóttir        
  7. Uppgjör - Lee Child     
  8. Uppruni - Dan Brown     
  9. Vegahandbókin 2018 - Steindór Steindórsson      
  10. Stormfuglar - Einar Kárason       


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×