Messan um Vertonghen-Hazard atvikið: Hefði Jói Berg farið í svona tæklingu á Gylfa? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2018 11:30
Belgar eru eitt mest spennandi liðið á HM í fótbolta í Rússlandi í sumar en tveir leikmenn liðsins þurfa líklega að ræða aðeins málin eftir leik Chelsea og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Eden Hazard hjá Chelsea og Jan Vertonghen hjá Tottenham. Jan Vertonghen braut nefnilega mjög illa á Eden Hazard í leik liðanna um helgina en það versta við brotið er að dómari leiksins, Andre Marriner, dæmdi ekki neitt og hélt því fram að um leikaraskap væri að ræða hjá Eden Hazard. Myndavélarnar sýndu hinsvegar að Jan Vertonghen fór með takkana í kálfann á Eden Hazard. Vertonghen hefði getað fengið rautt en fékk ekki einu sinni dæmda á sig aukaspyrnu. Eden Hazard lá hinsvegar eftir sárþjáður. Ríkharð Guðnason og félagar í Messunni tóku fyrir þessa tæklingu og Ólafur H. Kristjánsson hafði sína skoðun á atvikinu. „Þetta er glórulaus tækling og svo að dómarinn skuli ekki sjá þessa tæklingu. Hann er vel staðsettur. Vertonghen fer yfir boltann og beint í sköflunginn á honum,“ sagði Ólafur og var allt annað en sáttur með Andre Marriner dómara. Jan Vertonghen þarf á Eden Hazard að halda á HM í sumar ef Belgarnir ætla að komast langt. „Hann er ekkert að spá í því þarna hvað gerist í Rússlandi í sumar. Ég held eins og við töluðum aðeins um fyrir þátt að ef að þetta hefði verið Jói Berg á móti Gylfa þá held ég að hann hefði ekki farið í þessa tæklingu,“ sagði Mikael Nikulásson sem var í Messunni með þeim Ríkharð og Ólafi.Það má sjá alla umfjöllun Messunnar um brotið í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira