Innlent

Fannst mikilvægt að fólk vissi að uppljóstrarinn væri hinsegin kona og öryrki

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Bára Halldórsdóttir uppljóstrarinn á Klausturbar ákvað að loknum mótmælum á Austurvelli síðustu helgi að stíga fram og greina frá því að hún hefði tekið upp samtal sex þingmanna sem sátu að sumbli á Klaustur bar og urðu sér til skammar.
Bára Halldórsdóttir uppljóstrarinn á Klausturbar ákvað að loknum mótmælum á Austurvelli síðustu helgi að stíga fram og greina frá því að hún hefði tekið upp samtal sex þingmanna sem sátu að sumbli á Klaustur bar og urðu sér til skammar. Vísir/Arnar
Bára Halldórsdóttir uppljóstrarinn á Klausturbar ákvað að loknum mótmælum á Austurvelli síðustu helgi að stíga fram og greina frá því að hún hefði tekið upp samtal sex þingmanna sem sátu að sumbli á Klaustur bar og urðu sér til skammar.

Það rann upp fyrir henni á mótmælunum að hún sjálf tilheyrði þeim samfélagshópum sem ummæli þingmannanna beindust helst gegn; konum, fötluðum og hinsegin fólki. Bára greindi frá þessu í viðtali í þjóðmálaþætti Stöðvar 2 Víglínunni.

Vildi leiðrétta rangfærslur

Báru fannst mikilvægt að leiðrétta rangfærslur sem hafa verið uppi í umræðunni með því að stíga fram. Uppljóstrarinn hefði hvorki verið með hlerunarbúnað né væri um samsæri að ræða gegn þingmönnunum.

Henni fannst skipta máli að fólk væri meðvitað um að sú sem tók upp væri manneskja sem orðin beindust með óbeinum hætti gegn og blöskraði framferði þingmannanna. Báru þótti auk þess óþægilegt að fela sig því hún sé alls ekki vön því. Hún er með opið Snapchat þar sem hún hleypir fjölda fólks inn í líf sitt og fræðir um sinn „ósýnilega sjúkdóm“ og líf sitt sem öryrki og hinsegin manneskja. Henni finnst hún ekki hafa brotið af sér þó hún viðurkenni að hafa vissulega brotið gegn norminu.

 

Þóttist lesa ferðamannabækling

Bára var nýbúin að hitta vini sína sem eru útlendingar en voru í heimsókn á Íslandi. Á Klausturbar hafði hún meðferðis bæklinga um innanlandsferðir og vinsæla ferðamannastaði. Fyrst þegar hún tók eftir látunum í þingmönnunum sem sátu að sumbli voru þeir að tala um „einhverja kerlingu“ sem þeim fannst hafa haft sig of mikið í frammi í umræðu um fjárlögin.

Bára ákvað að taka samtalið upp til þess eins að geta hlustað sjálf á ummælin því hana blöskraði svo tal þingmannanna. Þrátt fyrir að Bára hafi einungis ætlað sér að taka örstutt upp fór það þannig að upptakan varð tæpar fjórar klukkustundir að lengd því þingmennirnir létu ekki af særandi orðræðu sinni.

„Svo voru einhver ummæli sem ég væri til í að borga mikil fyrir að muna hver voru sem gerðu það að verkum að ég kveikti á upptöku því ég var bara, getur verið að ég sé að heyra rétt? – en ég heyri ekki mjög vel – þannig að ég ákvað að taka upp og hlusta á aftur og svo fór þetta af stað og ég hætti bara ekkert að taka upp.“

Bára ákvað því að doka við og þóttist vera að lesa ferðamannabæklingana og hripaði eitthvað niður á meðan hún sperrti eyrun og hlustaði á tal þingmannanna. „Ég er orðin einstaklega fróð um hvaða ferðir eru í boði fyrir fólk,“ segir Bára og skellir upp úr.

Báru sárnaði ummælin sem þingmennirnir létu falla í garð kvenna, fatlaðra og hinsegin fólks.Vísir/Arnar

Sárnaði ummælin

Hún segist hafa verið rosalega stressuð og í heillöngu „hneyksliskasti“ á meðan á samtali þingmannanna stóð. Bára sagðist þá einnig hafa verið sár yfir því að hegðunin væri í raun eitthvað sem valdafólki þætti sjálfsagt að hafa í frammi á almannafæri. Það hafi valdið henni miklum vonbrigðum að heyra þingmennina tala sem þessum hætti því hún vissi að þeir sætu í nefndum og byggju til reglur sem vörðuðu hana beint.

„Það vildi bara svo til að manneskjan á næsta borði var sú sem hefur skipt þetta fólk minnstu máli, miðað við talsmátann,“ segir Bára.

 

Þingmenn Flokks fólksins hafi ekki farið snemma af fundinum

Bára segir að þingmennirnir Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, áður þingmenn Flokks fólksins, hefðu ekki farið snemma af fundinum, það hafi ekki verið fyrr en undir lok fundarins sem þeir hafi yfirgefið barinn.

„Þeir sátu þarna allan þennan tíma og ég veit ekki hvort þeir hafi viljandi haft sig til hlés að einhverju leyti en í hvert skipti sem þú segir ekki neitt þá ertu að samþykkja eitthvað.“

 

Ekki hrædd við lögsóknir

Bára segist aðspurð ekki vera hrædd við að þingmennirnir fari í mál við hana á grundvelli persónuverndarsjónarmiða. Hún veltir því fyrir sér hvort þeir ætli sér að taka af henni; hundinn eða orðsporið því hún sé öryrki sem hafi lítið á milli handanna.

 

„Það var nauðsynlegt að koma þessu á framfæri og ef ég á að fara á sakaskrá fyrir eitthvað þá held ég ekki að þetta sé það versta sem ég gæti gert.“

 

Bára segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem hún verði vitni að særandi tali í garð öryrkja og kvenna af hálfu þingmanna. Viðkvæðið sé oft þannig að konur séu of háværar og að troða sér inn á annarra manna svið og að öryrkjar séu einskis virði. Þá þykir henni það afar særandi þegar stjórnmálamenn etji hennar samfélagshópi, öryrkjum, á móti útlendingum „og öðrum sem hafa það alveg jafn slæmt og maður sjálfur.“

 

Mættu ekki nota málið í pólitískum tilgangi

Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar og Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs voru gestir Heimis Más Péturssonar í fyrri hluta þáttarins. 

Þorsteinn sagði að ummæli sexmenninganna á Klaustri hefðu slest á allt þingið og virðingu þess. Miklu máli skipti fyrir virðingu Alþingis að tekið væri á máli þeirra af festu og það leitt til lykta fyrir siðanefnd.

Rósa Björk sagðist vera ánægð með að siðanefndarferlið hafi verið til staðar. Þingmenn hafi getað beint athugasemdum sínum þangað. Hún varaði einnig við gríðarlegri freistingu sem væri til staðar að málið væri nýtt í pólitískum tilgangi. Þingmenn yrðu að passa sig á því þar sem það myndi gjaldfella það sem málið snerist raunverulega um; siðferði og ábyrgð.

Í myndspilaranum hér að neðan er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×