Enski boltinn

Emery um Ramsey: Einbeittu þér að liðinu

Dagur Lárusson skrifar
Aaron Ramsey.
Aaron Ramsey. vísir/getty
Unai Emery, stjóri Arsenal, hefur hvatt Aaron Ramsey til þess að einbeita sér að leikjum liðsins en ekki að samningsmálum sínum.

 

Samningur Ramsey við Arsenal mun renna út eftir 10 mánuði en hann hefur búist við því að endurnýja samning sinn við félagið frá því umboðsmenn hans og félagsins náði samkomulagi í sumar. Eftir það samkomulag dró félagið tilboð sitt til baka og því liggur framtíð leikmannsins í lausu lofti.

 

Emery vill þó að leikmaðurinn einbeiti sér eingöngu að leik liðsins gegn Crystal Palace á morgun.

 

„Ég vil að mín einbeiting sé á þessum leik og ég vil líka að hans eibeiting sé á þessum leik,“ sagði Emery.

 

„Auðvitað er það þannig að hver og einn leikmaður er með mismunandi samning við félagið og mismunandi vandamál en við verðum samt allir að setja þessi mál til hliðar þegar kemur að leikjum.“

 

„Það er enginn misskilngur milli mín og Ramsey, ég met það svo útfrá okkar samtölum. Á fimmtudaginn þá sýndi hann skuldbindingu sína gagnhvart félaginu með spilamennsku sinni. Ég var mjög ánægður með hans spilamennsku.“

 

„En ég vil það sama frá honum á morgun og fyrir alla aðra leiki. Einbeittu þér að liðinu og einbeittu þér að næsta leik.“

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×