Schyman hættir sem leiðtogi Feminísks frumkvæðis Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2018 19:22 Bandaríska leikkonan Jane Fonda og Gudrun Schyman árið 2006. EPA/LEIF R JANSSON
Gudrun Schyman hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri sem formaður sænska stjórnmálaflokksins Feminísks frumkvæðis (Feministiskt initiativ).Frá þessu greinir Dagens Nyheter í kvöld. Flokkurinn missti mikið fylgi í þingkosningunum í Svíþjóð í haust og hlaut einungis 0,45 prósent atkvæða. Schyman segir að strax eftir kosningarnar hafi hún hugsað að hún gæti ekki látið af embætti þá þegar allir voru niðurlútir. Slíkt hefði verið eins og að yfirgefa sökkvandi skip. Schyman hefur verið virk í starfi flokksins allt frá því að flokkurinn var stofnaður árið 2005. Hún hefur gegnt formannsembætti í flokknum í ellefu ár, en nú deilir hún embættinu með Gita Nabavi.Náði konu inn á Evrópuþingið Feminískt frumkvæði hefur boðið fram til þings í Svíþjóð frá árinu 2006 og var nálægt því að ná mönnum inn á þing árið 2014. Þá fékk flokkurinn 3,12 prósent fylgi. Í kosningum til Evrópuþingsins sama ár fékk flokkurinn hins vegar 5,40 prósent atkvæða og náði manni inn á þingið, Soraya Post. Schyman á að baki langan feril í sænskum stjórnmálum og var formaður Vinstriflokksins á árunum 1993 til 2003. Hún sat á þingi á árunum 1988 til 2006.
Norðurlönd Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira