Þurftu að léttast eða leggja inn á Samfylkinguna Stefán Árni Pálsson skrifar 9. október 2018 14:30 Sigmundur Davíð verður í þætti Íslands í dag í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er búinn að missa þrjátíu kíló undanfarna mánuði og er hvergi nærri hættur. Sigmund þekkja líklega flestir sem fyrrum forsætisráðherra, formann Miðflokksins og sjónvarpsmann í fyrri tíð. Færri þekkja hann hins vegar sem mikinn líkamsræktarfrömuð, en þar hefur hann látið til sín taka undanfarna mánuði. Átakið byrjaði þegar kílóin voru orðin 127 á vigtinni, fleiri en nokkru sinni fyrr. Nokkrir Miðflokksmenn ákváðu að snúa við blaðinu að frumkvæði þingmannsins Bergþórs Ólasonar, enda hafi þingflokkur þeirra verið orðinn sá lang þyngsti. „Þá kom Beggi með þessa hugmynd, að við ættum að sammælast um það að sá sem næði ekki að missa fimmtán kíló fyrir tiltekna dagsetningu þyrfti að greiða í eigin nafni 100 þúsund krónur í kosningasjóð Samfylkingarinnar,“ segir Sigmundur. Þetta tókst hjá þeim öllum enda mikið lagt í átakið, en Sigmundur æfir þrisvar í viku undir handleiðslu einkaþjálfara og leggur mikla áherslu á hollt mataræði. Hann leyfir sér þó enn að gæða sér af og til á hráu íslensku kjöti, en sleppir kexinu sem áður fylgdi.Sjá einnig:Sigmundur Davíð með frumlegasta nestið á AlþingiRætt verður við Sigmund Davíð í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax eftir kvöldfréttir. Þar verður m.a. farið yfir heilsuna, mataræðið og frímerkjaáráttuna sem Sigmundur hefur alla tíð verið haldinn, auk þess sem Hersir Aron Ólafsson kíkir með honum í ræktina.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira